Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

ANDLIT NORÐURSINS Í KEPPNI Á SHEFFIELD DOC/FEST

Last_Days_of_the_Arctic_Still1

9.6.2011

Heimildamyndin Andlit norðursins eftir Magnús Viðar Sigurðsson verður sýnd í keppni á kvikmyndahátíðinni Sheffield Doc/Fest , sem fram fer dagana 8. – 12. júní. Andlit norðursins er meðal sex mynda sem tilnefndar eru til Sheffield Green verðlaunanna. Andlit norðursins fjallar um ljósmyndarann Ragnar Axelsson, RAX, og er framleidd af Sagafilm. Myndin hlaut styrk frá Kvikmyndasjóði Íslands.

Hér má sjá nánari upplýsingar um Sheffield Doc/Fest og myndirnar sem þar eru sýndar.



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar