FRÉTTIR
Festival de Cannes Residence
4 1/2 mánaðar langt námskeið í París
Árlega heldur Festival de Cannes Residence námskeið fyrir 12 unga kvikmyndagerðarmenn sem vinna að fyrstu eða annari kvikmynd sinni í fullri lengd. Námskeiðið er fjögurra og hálfsmánaðar langt og er haldið tvisvar á ári. Taka 6 ungir leikstjórar þátt í hvoru þeirra. Námskeiðin eru haldin í París og búa þáttakendur í íbúð námskeiðisins á meðan það stendur yfir.
Umsækendur eru valdir inn eftir styrk fyrri stuttmynda eða fyrstu kvikmyndar, sem og eftir hugmynd að nýrri kvikmynd.
Næsta námskeið er haldið á tímabilinu 28. febrúar til 10. júlí 2006. Umsóknarfrestur rennur út 19. september 2005.
Tilkynnt verður hverjir komast að 9. desember 2005, sjá nánar í reglum um námskeiðið.
Nánari upplýsingar má finna á www.festival-cannes.org
Tel.:+33 (0)1 53 59 61 20
netfang: residence@festival-cannes.fr

