Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

thicker_than_water

FRÉTTIR

TILMAN SCHEEL FRÁ REELPORT OG EUROPE'S FINEST Á YOU ARE IN CONTROL

tilmanscheel

25.8.2011

Tilman Scheel (DE), stofnandi og framkvæmdastjóri Reelport GmbH og Europe’s Finest, verður sérstakur gestur á aþjóðlegu ráðstefnunni You Are In Control sem fram fer í Hörpu 10. – 12. október í ár.

Reelport er vettvangur á netinu til að senda inn myndir til sýninga á kvikmyndahátíðir eins og Oberhausen og Tampere. Frá stofnun fyrirtækisins árið 2005 hafa fleiri en 21.000 kvikmyndagerðarmenn og fyrirtæki sett inn 28.000 kvikmyndir og þannig sótt um að þær verði teknar til sýninga á rúmlega 70 hátíðum, meðal annars Marché du Film, Cannes og The Tallinn Black Night Film Market. Europe´s Finest hefur keypt Evrópuréttinn á yfir 70 klassískum kvikmyndum, fært þær á stafrænt 2k DCI form og sýnt þær í hundruðum kvikmyndahúsa í 16 löndum í Evrópu.

You Are In Control er framsækin ráðstefna og vinnusmiðjur þar sem leitast er við að varpa ljósi á ný viðskiptamódel í skapandi greinum á tímum stafrænnar byltingar. Tilgangurinn með ráðstefnunni er að koma á alþjóðlegu tengslaneti og skapa þekkingarbanka á Íslandi um stafræn viðskipti og markaðssetningu í skapandi greinum. Markmiðið er að ýta undir aukna samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja og einstaklinga í þessum geira atvinnulífsins á alþjóðlegum vettvangi.

Hægt er að skrá sig á ráðstefnuna á vefnum: http://youareincontrol.is/



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar