FRÉTTIR
Lifandi í limbói fær sérstaka mannréttinda viðurkenningu
Heimildarmyndin Lifandi í limbói eftir Hrafnihildi Gunnarsdóttir hlaut sérstaka viðurkenningu í flokki mannréttindaverðlauna á Locarno kvikmyndahátíðinni í Sviss í ágúst. Tvær myndir hlutu þessa viðurkenningu.
Lifandi í limbói eða Alive in Limbo fjallar um átökin í fyrir botni Miðjarðarhafs og segir frá því hvernig nokkrir ungir krakkar frá Palestínu og Líbanon upplifa átökin, en þau eru heimsótt með tíu ára millibili. Myndin endurspeglar viðhorf þeirra til lífsins og aðstæðurnar sem þau alast upp í. Myndin er leikstýrð af Hrafnhildi Gunnarsdóttur, Erica Marcus og Tina Naccache. Lesa má nánar um hátíðina hér.

