FRÉTTIR
Íslensk kvikmyndahátíð í Danmörku
Kvikmyndaleikstjórarnir Hilmar Oddsson, Dagur Kári og Friðrik Þór Friðriksson verða viðstaddir opnun hátíðarinnar í Kaupmannahöfn. Þeir munu kynna myndir sínar og taka þátt í málþingi um íslenska kvikmyndagerð í Cinemateket 3. september. Að auki mun Laufey Guðjónsdóttir, forstöðumaður Kvikmyndastöðvarinnar halda erindi og taka þátt í umræðum.
Hátíðin verður í Cinemateket í Kaupmannahöfn dagana 1. – 22. september 2005 og í Øst for Paradis, Árósum dagana 23. – 29. september 2005
Aðrir samstarfsaðilar eru: Sendiráð Íslands Danmörku, Icelandair og Kvikmyndamiðstöð Íslands.

