Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Children

FRÉTTIR

ÍSLENSKAR KVIKMYNDIR Í TORONTO

10.9.2005

eleven_men_out_bjornog_familyKvikmyndin Strákarnir okkar eða 11 Men Out eins og hún heitir á ensku var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto í gærkvöldi. Myndin, sem er í leikstjórn Róberts Douglas, fékk ákaflega góðar viðtökur og er almenn ánægja með hana.  Fleiri sýningar eru fyrirhugaðar á næstu dögum.

Mánudaginn 12. september er svo frumsýning á mynd Baltasars Kormáks, Little Trip to Heaven. Mikil eftirvænting er ríkjandi og seldust miðar á fyrstu sýningarnar upp á svipstundu.

Mikil spenna er einnig fyrir Bjólfskviðu Sturlu Gunnarssonar sem beðið hefur verið eftir, en miðvikudagskvöldið 14. september verður þessi stórmynd frumsýnd.

Bæði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra verðar viðstaddar frumsýningar á Little Trip to Heaven og Beowoulf and Grendel.

Toronto kvikmyndahátíðin telst ein sú virtasta sem haldin er í heiminum í dag, á eftir hátíðunum í Cannes og Berlín, og því er það mikill heiður að vera valinn inn á hátíðina.



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar