Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

The Sea

FRÉTTIR

SPENNANDI DAGSKRÁ Á YOU ARE IN CONTROL

5.10.2011

Fáðu hugmyndir um hvernig á að markaðssetja

Einstaklega spennandi tækifæri hefur nú boðist um að þrjú verkefni frá aðilum sem eru skráðir á YAIC fái skjótráðgjöf frá Iain Forsyth og Jane Pollard. Opnað hefur verið fyrir umsóknir frá þátttakendum sem vilja fara í hugmyndavinnu með þeim um hvernig best sé að koma vöru þeirra eða sköpun á framfæri. Sjá nánar varaðndi umsóknir hér

Verkefnið getur verið úr öllum skapandi greinum. Iain og Jane þykja á meðal framsæknasta markaðsfólks tónlistargeirans í Bretlandi þar sem þau hafa starfað með Nick Cave, Tom Yorke, White Stripe og Adele svo fáeinir séu nefndir. Þau eru einnig starfandi myndlistarmenn sem halda reglulega sýningar og hafa hlotið fjölda viðurkenninga. Eitt verka þeirra verður sýnt á meðan á ráðstefnunni og Iceland Airwaves stendur.

Fjárfestingar – vinnustofa og tækifæri til að kynna verkefni
Hér gefst eintsakt tækifæritil að kynna hugmynd eða viðskiptaáætlun fyrir verkefni úr öllum skapandi greinum til fjárfesta. Fulltrúar nýsköpunarsjóðs munu fjalla um fjárfestingar í skapandi greinum, hvernig beri að útbúa kynningar og hvaða skilyrði verkefni þurfa að uppfylla. Hægt er að sækja um að fá að kynna verkefnið sitt hjá fjárfestunum. Frekari upplýsingar veitir Anna Ásthildur annathorst@gmail.com Umsóknir verða að berast fyrir 7 október nk.

Nýlega var staðfest

Anita Fontaine (AUS) og Geoffrey Lillemon (USA) fram Chamgagne Valentine koma fram á YAIC. Þau hafa átt stóran þátt í því að umbreyta lista- og auglýsingaheiminum með áleitinni og tjáningarríkri sköpun sinni. Þau reka saman Champagne Valentine stofuna og hefur þeim tekist með aðdáunarverðum hætti að sinna verkefnum innan auglýsingabransans, tísku, tónlistar og gagnvirkrar hönnunar án þess að fórna listrænum trúverðugleika sínum.

Hér eru taldir aðeins fjórir af hátt í 30 fyrirlesurum sem koma fram. Sjá nánar um dagkránna hér

You are in Control hefur vaxið fiskur um hrygg og notið síaukinnar hylli bæði erlendis og á Íslandi:

It fuses creative industries. There are people here from all over: film, music, fashion, art, design, advertising. We all need inspiration and we can inspire each other. Our worlds are coming together.”

-Panos Panay, Sonicbids (US)

„Ég komst í mikilvæg sambönd á You are in Control og gat nýtt mér fullt af hugmyndum sem komu fram.“

Ólafur Arnalds tónlistarmaður

Miðasala á ráðstefnuna:

Enn eru til miðar á ráðstefnuna og er hægt að nálgast þá á heimasíðu ráðstefnunnar, miðaverð er 30.000 kr.

Auk þess býður YAIC fyrirtækjum sem vilja senda þrjá aðila á ráðstefnuna að fá þriðja miðann á hálfvirði. Þau fyrirtæki sem óska eftir að senda fleiri en þrjá þátttakendur á ráðstefnuna geta haft samband við Bryndísi hjá You Are In Control til að óska eftir tilboði.

Sérstakur afsláttur

Af gefnu tilefni er sérstakur afsláttur veittur fyrir einyrkja/einstaklinga sem vinna við skapandi greinar og fá þeir miða á ráðstefnuna á einungis 10.000 kr í stað 30.000 kr sem er nú almennt miðaverð. Einnig hafa félögin FÍT, FÍH, TÍ og STEF niðurgreitt nokkra miða og býðst því einnig félagsmönnum að fá miða á 10.000kr.

Til þess að nýta þessi tilboð er hægt að hafa samband við Bryndísi hjá You Are In Control og þar sem þessir miðar eru í takmörkuðu upplagi og gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær.



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar