Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

thicker_than_water

FRÉTTIR

TILNEFNINGAR TIL KVIKMYNDAVERÐLAUNA NORÐURLANDARÁÐS

19.9.2005

Kvikmyndin Dís í leikstjórn Silju Hauksdóttur og heimildarmyndin Gargandi Snilld eftir Ara Alexander Ergis Magnússon hafa verið tilnefndar til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2005. Úrslit verða tilkynnt í Kaupmannahöfn 12. október n.k. og eru verðlaunin rúmar 3.500.000 krónur sem skiptast jafnt á milli leikstjórans, handritshöfundar og framleiðenda. Í íslensku dómnefndinni sátu Hrönn Kristinsdóttir, Sigurjón B. Sigurðsson og Sif Gunnarsdóttir.

Aðrar norrænar myndir sem tilnefndar eru:

Danmörk:

Morðið (Manslaughter). Leikstjóri: Per Fly

Pusher II (Pusher II – With Blood on my hands). Leikstjóri: Nicolas Winding Refn.

Finnland:

Þrjú tregaherbergi (The 3 rooms of Melancholia). Leikstjóri: Pirjo Honkasalo.

Frosið Land (Frozen Land). Leikstjóri: Aku Louhimies.

Ísland:

Dís. Leikstjóri: Silja Hauksdóttir

Gargandi Snilld (Screaming Masterpiece). Leikstjóri: Ari Alexander Ergis Magnússon.

Noregur:

Hawaii, Osló. Leikstjóri: Erik Poppe.

Vetrarkoss (Kissed by Winter). Leikstjóri Sara Johnsen.

Svíþjóð:

Hjartasár (A Hole in my Heart). Leikstjóri: Lukas Moodysson.

Gitarrmongot (The Guitar Mongoloid). Leikstjóri: Ruben Östlund.

Nánari upplýsingar um Norrænu Kvikmyndaverðlaunin má finna á: http://www.norden.org/webb/news/news.asp



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar