FRÉTTIR
ELDFJALL HLÝTUR AÐALVERÐLAUNIN Á KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI Í MONTRÉAL
Eldfjall, kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, hlaut gullna úlfinn – aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar í Montréal, Festival du Nouveau Cinema. Auk þess hlaut myndin sérstök gagnrýnendaverðlaun samtakanna AQCC, Association québécoise des critiques de cinéma.
Alls kepptu nítján myndir frá öllum heimshornum um verðlaunin. Þetta var í fertugasta sinn sem hátíðin fór fram.
Eldfjall hlaut silfurverðlaun á kvikmyndahátíðinni í Chicago í liðinni viku, og þykja þessar góðu viðtökur í Norður-Ameríku lofa góðu um möguleika myndarinnar til að hljóta tilnefningu til Óskarsverðlauna. Sem fram hefur komið er Eldfjall framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna.
Eldfjall fjallar um Hannes, 67 ára gamlan mann sem er að komast á eftirlaunaaldur. Hann er karlmaður af gamla skólanum, einangraður frá fjölskyldunni og heimilinu og þarf nú að takast á við nýtt hlutverk í lífinu. Eldfjall er þroskasaga manns sem þarf að horfast í augu við val fortíðarinnar og erfiðleika nútímans til að eiga möguleika á framtíð
