FRÉTTIR
ÍKSA meðlimir hvattir til að uppfæra upplýsingar og senda inn netföng
Edduverðlaunin verða veitt þann 6. nóvember næstkomandi og innan fárra daga verður tilkynnt um fresti til að senda inn efni. Þeir sem eru á kjörskrá eða telja sig eiga að vera þar eru hvattir til að skoða kjörskrána hér og senda leiðréttingar eftir þörfum. Stjórn ÍKSA og Kvikmyndamiðstöð Íslands vinna nú að uppfærslu kjörskrár og er sérstaklega leitað eftir netföngum. Því eru allir meðlimir ÍKSA hvattir til að senda upplýsingar um netföng sín á info@kvikmyndamidstod.is

