FRÉTTIR
THEODÓR JÚLÍUSSON VALINN BESTI LEIKARINN Í SAO PAULO
Theódór Júlíusson var í fyrrinótt útnefndur besti leikarinn á 35. kvikmyndahátíðinni í Sao Paulo fyrir leik sinn í Eldfjalli, kvikmynd Rúnars Rúnarssonar. Þetta er í annað sinn sem hann er verðlaunaður sérstaklega, en áður hafði kvikmyndahátíð Evrasíu í Kazakhstan veitt honum fyrstu verðlaun fyrir
hlutverk sitt í myndinni. Sýning Eldfjalls í Sau Paulo markaði frumsýningu myndarinnar í S-Ameríku.
Fyrir viku hlaut Eldfjall aðalverðlaunin í Valladolid, fyrir hálfum mánuði hlaut hún aðalverðlaunin, Gullna úlfinn, á kvikmyndahátíðinni í Montréal, og helgina þar á undan hlaut hún silfurverðlaun á kvikmyndahátíðinni í Chicago.
Auk þess að vera í Sao Paulo, hefur myndin í þessari viku tekið þátt í keppni Vín og Denver, auk þess sem hún hefur verið sýnd á norrænum kvikmyndadögum í Lübeck.

