Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

Fundur með Evrópsku kvikmynda akademíunni

20.9.2005

Nik Powell er skólastjóri hjá National Film and Telvevison School í Bretlandi, stjórnarformaður European Film Academy og er einn reyndasti kvikmyndaframleiðandi í Evrópu.

Snemma á 8. áratugnum stofnaði Nik Powell fyrirtækið Virgin Records ásamt félaga sínum Richard Branson og á um 10 árum þróaðist fyrirtækið úr litlu póstpöntunarfyrirtæki í fyrirtæki með milljarða veltu á ári.

Hann var einn af stofnendum framleiðslufyrirtækisins Palace Production og aðalframleiðandi þess í lengri tíma. Hann vann til fjölda viðurkenninga og tilnefninga. Þar má nefna Neil Jordan verðlaunin Company of Wolves, myndin Mona Lisa var tilnefnd til Óskarsverðlauna og vann til verðlauna á Cannes kvikmyndahátíðinni og myndin The Crying Game vann Óskarsverðlaun.

Árið 1992 stofnaði hann ásamt Wooley SCALA Production. Framleiddu þeir á meðal annars The Neo Bible í leikstjórn Terence Davies sem tilnefnd var til Óskarsverðlauna og Little Voice eftir Mark Hermann sem vann til Golden Globe verðlaunanna. Síðast framleiddi Nik Powel myndina Calendar Girls undir leikstjórn Nigel Cole og myndina Ladies in Lavender í leikstjórn Charles Dance.

Í September 2003 tók Nik Powel við stjórn National Film & Television School (NFTS) í London. Hann hefur verið stjórnarmeðlimur Evrópsku kvikmynda akademínunnar (EFA) frá 1996 og stjórnarformaður frá 2005.

Fyrirlesturinn „25 Lessons of Nik Powell” er hugsaður fyrir kvikmyndagerðarmenn og framleiðendur og er einstakt tækifæri til þess að heyra einn reyndasta framleiðanda í Evrópu miðla af reynslu sinni.

Eftir fyrirlesturinn verða opnar umræður stjórnarmeðlima EFA og íslenskra kvikmyndagerðarmanna.

Stjórn Evrópsku kvikmynda akademínunnar sem verður á fundinum:

Stjórnarformaður: Nick Powell, framleiðandi og skólastjóri National Film and Television School, Bretland

Stjórnarmenn:

Adriana Chiesa di Palma, sölufulltrúi, Ítalía

Pierre-Henri Deleau, Kvikmyndahátíðarstjórnandi, Frakkland

Mike Downey, framleiðandi, Bretland

Ulrich Felsberg, framleiðandi, Þýskaland

Stephan Hutter, framleiðandi, Þýskaland

Cedomir Kolar, framleiðandi, Frakkland

Antonio Perez Perez, framleiðandi, Spánn

Domenico Procacci, framleiðandi, Ítalía

István Szabó, leikstjóri, Ungverjaland

Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig á netfangið martin@kvikmyndamidstod.is þar sem fjöldi þátttakenda er takmarkaður.

 



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar