Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

THE GOOD PITCH EUROPE 2012 KALLAR EFTIR UMSÓKNUM

goodpitch

5.1.2012

The Good Pitch Europe 2012 kallar eftir umsóknum til þátttöku í fjármögnunarmessu sem haldin verður í London þann 25. júní 2012. Viðburðurinn er ætlaður kvikmyndagerðarmönnum sem vinna að verkefnum tengdum umhverfis- og/eða félagsmálum. Undanfari messunnar eru tvær vinnustofur. Umsóknarfrestur rennur út kl. 16:00 þann 1. febrúar 2012.

Þótt opið sé fyrir umsóknir á öllum framleiðslustigum er mælt sérstaklega með verkefnum þar sem tökum er lokið.

Þeir sem veljast til þátttöku þurfa að mæta á vinnustofu í London 9. – 11. mars og 22. – 26. júní.

Ekki þarf að greiða umsóknar- eða þátttökugjald.

Nánari upplýsingar má nálgast hér.



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar