Children

TVÖ ÍSLENSK VERKEFNI VALIN Á WEMW

18.1.2012

wemw

Fjármögnunarmessan WEMW, When East Meets West 2012, verður haldin í Trieste á Ítalíu 19. og 20. janúar 2012 og er hún hluti af Trieste kvikmyndahátíðinni. Eftir að hafa metið 182 umsóknir frá 29 Evrópulöndum hefur verið tilkynnt um hvaða 18 verkefni voru valin til almennrar sölukynningar.

Meðal þeirra er eitt íslenskt verkefni, Hross um oss, sem nú er í undirbúningi hjá Hughrifum ehf. Benedikt Erlingsson leikstýrir myndinni og Friðrik Þór Friðriksson og Guðrún Edda Þórhannesdóttir framleiða.

Verkefnin 18 verða kynnt í pallborðs- og hringborðsumræðum, jafnt sem á tveggja manna fundum og á námskeiðum. Þeim þátttakendum, sem urðu fyrir valinu, býðst að kynna verkefni sín fyrir hugsanlegum samstarfsaðilum frá Austur-Evrópu, Ítalíu og Norðurlöndunum, auk þess sem þeir keppa um hin eftirsóttu EAVE, European Producers Workshop Award.

Vegna fjölda og gæða umsókna tók WHEN EAST MEETS WEST upp á þeirri nýbreytni að bæta við tveimur nýjum flokkum, annars vegar fyrir myndir á byrjunarstigi þróunar og hins vegar fyrir verkefni sem lengra eru komin. Tíu myndir komust í úrslit í hvorum flokki, þ.á.m. íslenska heimildamyndin, Aska frá Spier Films og Edison lifandi ljósmyndum ehf., í fyrrnefnda flokknum.

Leikstjóri Ösku er Herbert Sveinbjörnsson, en Gunnar Sigurðsson og Heather Millard  framleiðendur.

 

Nánari upplýsingar: www.wemw.it and www.triestefilmfestival.it




Þetta vefsvæði byggir á Eplica