Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

FRÉTTIR

ÞRJÁR ÍSLENSKAR KVIKMYNDIR TAKA ÞÁTT Í ALÞJÓÐLEGU KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI Í GAUTABORG

gautaborg

23.1.2012

Drama, gaman, hasar og ævintýri ráða í bland ríkjum í þremur íslenskum kvikmyndum – Eldfjalli, Á annan veg og Hetjum Valhallar – Þór, sem taka þátt í GIFF, Göteborg International Film Festival, í Gautaborg, Svíþjóð dagana 27. janúar til 6. febrúar.

Hápunktur hátíðarinnar er alþjóðleg keppni, annars vegar um Drekaverðlaunin, The Dragon Award, sem veitt eru fyrir bestu norrænu kvikmyndina, og hins vegar um The Ingmar Bergman International Debut Award, sem veitt verða í fjórða sinn fyrir fyrstu eða aðra kvikmynd leikstjóra.

Á annan veg, kvikmynd Hafsteins Gunnars Sigurðssonar, er meðal átta mynda, sem tilnefndar eru til Drekaverðlaunanna. Verðlaunin, 1 milljón sænskar krónur, eru ein þau veglegustu, sem veitt eru í kvikmyndaheiminum og verða afhent með viðhöfn laugardaginn 4. febrúar.  Á annan veg keppir við sænsku myndirnar Avalon, Flicker og She Male Snails, norsku myndirnar The Orheim Company og Sons of Norway, Stars Above frá Finnlandi og Teddy Bear frá Danmörku.

Árið 2012 er menningarár barna í Gautaborg og því heldur GIFF sérstaka kvikmyndahátíð fyrir börn, Göteborgs Youth Film Festival, 21. til 23. janúar. Kvikmyndin Hetjur Valhallar – Þór í leikstjórn Óskars Jónassonar og Gunnars Karlssonar verður sýnd á barnahátíðinni, en einnig á aðalhátíðinni.

Fjórar sýningar verða á Eldfjalli Rúnars Rúnarssonar, sem sýnd verður í flokknum Norðurljós.

Norræni markaðurinn á hátíðinni, The Nordic Market, er markaður fyrir norrænar kvikmyndir í fullri lengd og sjónvarpsþætti, ætlaður fagfólki frá Norðurlöndunum sem og hvaðanæva að úr heiminum. Kaupendum, dreifingaraðilum, sölumönnum og skipuleggjendum kvikmyndahátíða er boðið að koma og kynna sér nýjar kvikmyndir sem og kvikmyndir í framleiðslu. Kynntar verða þrjár íslenskar kvikmyndir á framleiðslustigi: Frost eftir Reyni Lyngdal, Þetta reddast eftir Börk Gunnarsson og Sólstöður eftir Lars Emil Árnason.  

Auk fjölda kvikmyndasýninga er gestum Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Gautaborg boðið upp á fjölbreytta dagskrá í ellefu daga, m.a. málstofur, tónleika, gjörninga og samkvæmi.



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar