Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

The Sea

FRÉTTIR

VINNUSTOFUR UM LEIKNA EVRÓPSKA SJÓNVARPSÞÆTTI

etv_header_952x162px.301

23.1.2012

Stofnun Erich Pommer í Þýskalandi, í samvinnu við MediaXchange í Bretlandi, stendur fyrir vinnustofum um nýjungar í gerð evrópskra sjónvarpsþátta.

Meðal þátttakenda verður leiðandi fagfólk í evrópskum sjónvarpsiðnaði, en dagskráin er sniðin fyrir handritshöfunda, framleiðendur og útsendingastjóra. Þátttakendur munu skiptast á skoðunum og ræða hvernig reynsla þeirra og þekking getur komið evrópskri sjónvarpsþáttagerð til góða.

Vinnustofurnar verða haldnar í Berlín, annars vegar 24. til 29. apríl 2012 og hins vegar 9. til 15. júní 2012.

Umsóknarfrestur er til 12. mars 2012.

Frekari upplýsingar má finna hér. www.tv-lab.eu



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar