FRÉTTIR
FIMM ÍSLENSKAR MYNDIR VALDAR Í KEPPNI Á MINIMALEN STUTTMYNDAHÁTÍÐINNI
Fimm íslenskar myndir voru valdar til að taka þátt í samkeppni, NIFA, um bestu, nýju norrænu stuttmyndina á Minimalen stuttmyndahátíðinni, Minimalen Short Film Festival, sem haldin verður í Þrándheimi í Noregi dagana 14. til 18. mars 2012.
Myndirnar eru: Minni máttar eftir Katrínu Ólafsdóttur, Útrás Reykjavík eftir Ísold Uggadóttur, Klás eftir Ragnar Snorrason, Litlir hlutir eftir Davíð Óskar Ólafsson og Yes Yes eftir Maríu Reyndal.
Þriggja manna alþjóðleg dómnefnd, sem leikstjórinn Rúnar Rúnarsson situr í, veitir fern verðlaun; fyrir bestu stuttmyndina, bestu heimildamyndina, bestu leiknu myndina og bestu teiknimyndina. Ennfremur sýnir Rúnar stuttmyndir sínar, Síðasta bæinn og Smáfugla, í sérstakri dagskrá í tengslum við Masterclass málstofuna.
Minimalen er óháð stuttmyndahátíð, sem haldin hefur verið frá árinu 1988. Sýndar verða um 200 myndir, sem lauslega skiptast í þrjá flokka; norskar, norrænar og alþjóðlegar stuttmyndir.
Nánari upplýsingar á heimasíðu hátíðarinnar:
http://www.minimalen.com/sider/en.php?a=ommini

