FRÉTTIR
TÓNLISTARMYNDBÖND AFTUR VERÐLAUNUÐ Á ÍSLENSKU TÓNLISTARVERÐLAUNUNUM
Hver bjó til besta tónlistarmyndbandið í fyrra?
Sú nýjung er tekin upp á Íslensku tónlistarverðlaununum í ár að verðlauna fyrir tónlistarmyndband ársins. Þó nokkur ár eru síðan verðlaun voru veitt í þessum flokki en með hálfgerðri endurkomu tónlistarmyndbandanna, meðal annars með tilkomu samfélagsmiðla, aðgengilegri tækni og nýrra leiða í markaðssetningu á tónlist, verður sá flokkur nú tekinn fyrir aftur. Frestur til skráningar myndbanda er til hádegis fimmtudaginn 9. febrúar. Nánari upplýsingar um gjaldgengi og skráningu er að finna á heimasíðu tónlistarverðlaunanna. Sérstök fagnefnd fer yfir innsend verk en hún er skipuð þeim Guðmundi Oddi Magnússyni (Goddi), grafískum hönnuði og prófessori við LHÍ, Dögg Mósesdóttur, kvikmyndagerðarkonu og skipuleggjanda Northern Wave kvikmyndahátíðarinnar og Arnari Eggerti Thoroddsen tónlistarblaðamanni. Þessi nefnd tilnefnir einnig plötuumslög ársins. Verðlaun fyrir bæði tónlistarmyndband og plötuumslag ársins verða veitt í Kastljósi RÚV.
Íslensku tónlistarverðlaunin fara fram miðvikudaginn 29. febrúar 2012 í Silfurbergi í Hörpu. Kastljóssþáttur RÚV verður með upphitun í aðdraganda verðlaunanna þar sem veitt verða verðlaun fyrir nokkra flokka og tilkynnt um heiðursverðlaunahafa. Í fyrsta þætti nýrrar Hljómskálaseríu verður síðan glæsileg yfirreið um Íslensku tónlistarverðlaunin þar sem Sigtryggur Baldursson, Guðmundur Kristinn Jónsson og Bragi Valdimar Skúlason sýna landsmönnum brot af því besta: skemmtilegustu ræðurnar, eftirminnilegustu augnablikin, viðtöl við sigurvegara, tónlistaratriði og ýmis forvitnileg innslög unnin af Hljómskálanum. Þátturinn sem verður a.m.k. klukkustundarlangur verður sýndur laugardaginn 3. mars í sjónvarpi allra landsmanna.

