EDDUVERÐLAUNIN 2012 - ELDFJALL VALIN BESTA KVIKMYNDIN
Edduverðlaunin 2012 voru afhent við hátíðlega athöfn í Gamla bíói þann 18. febrúar 2012 . Kvikmyndin Eldfjall, var valin besta mynd ársins og leikstjóri myndarinnar, Rúnar Rúnarsson, besti leikstjóri og handritshöfundur ársins. Aðalleikarar Eldfjalls, Margrét Helga Jóhannsson var valin besta leikkonan og Theódór Júlíusson besti leikarinn.
Edduverðlaunin eru uppskeruhátíð íslenska kvikmynda- og sjónvarpsgeirans, sem Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían (ÍKSA) hefur staðið fyrir frá árinu 1999. Vilhjálmur Knudsen kvikmyndagerðarmaður hlaut heiðursverðlaun akademíunnar í ár.
Eftirfarandi verk unnu til verðlauna:
Kvikmynd ársins: Eldfjall (leikstj. - Rúnar Rúnarsson)
Leikið sjónvarpsefni ársins: Pressa 2 (leikstj. – Óskar Jónasson)
Frétta- eða viðtalsþáttur ársins: Landinn (RUV)
Skemmtiþáttur ársins: Áramótamót Hljómskálans (RUV)
Menningar- eða lífstílsþáttur ársins: Hljómskálinn (RUV)
Heimildamynd ársins: Andlit norðursins (leikstj. Magnús Viðar Sigurðsson)
Stuttmynd ársins: Skaði (leikstj. Börkur Sigþórsson)
Barnaefni ársins: Algjör Sveppi og töfraskápurinn
Leikstjóri ársins: Rúnar Rúnarsson (Eldfjall)
Handrit ársins: Rúnar Rúnarsson (Eldfjall)
Sjónvarpsmaður ársins: Jóhannes Kr. Kristjánsson
Leikkona ársins í aðalhlutverki: Margrét Helga Jóhannsdóttir (Eldfjall)
Leikari ársins í aðalhlutverki: Theodór Júlíusson (Eldfjall)
Leikkona ársins í aukahlutverki: María Heba Þorkelsdóttir (Okkar eigin Osló)
Leikari ársins í aukahlutverki: Þorsteinn Bachmann (Á annan veg)
Kvikmyndataka ársins: Árni Filippusson (Á annan veg)
Klipping ársins: Elísabet Ronaldsdóttir (Hetjur Valhallar – Þór)
Hljóð ársins: Gunnar Árnason (Borgríki)
Tónlist ársins: Hilmar Örn Hilmarsson (Andlit norðursins)
Leikmynd ársins: Gunnar Karlsson (Hetjur Valhallar – Þór)
Búningar ársins: Margrét Einarsdóttir og Eva Vala Guðjónsdóttir (Á annan veg)
Gervi ársins: Ragna Fossberg (Áramótaskaupið)
Heiðursverðlaun ársins: Vilhjálmur Knudsen
Áhorfendaverðlaun ársins: Þóra Arnórsdóttir

