NBS

6 DAGA NÁMSKEIÐ HJÁ BINGER FILMLAB Í AMSTERDAM

21.2.2012

Binger_logo

Binger Filmlab í Amsterdam, alþjóðleg þróunarmiðstöð fyrir leiknar kvikmyndir og heimildamyndir, heldur 6 daga handritanámskeið dagana 23. – 25. mars og 20. – 22. apríl 2012. Umsóknarfrestur rennur út 24. febrúar.

Story Editing: Six Days of Practice, eða Ritstjórn: Sex daga æfing, er yfirskrift námskeiðsins, sem er sérsniðið fyrir yfirmenn þróunardeilda, starfsmenn kvikmyndasjóða, framleiðendur, innkaupastjóra og  handritshöfunda. Leiðbeinandi er Franz Rodenkirchen, handritsráðgjafi og kennari í Berlín, sem komið hefur að gerð fjölda alþjóðlegra kvikmyndaverkefna, bæði sem handritshöfundur og meðhandritshöfundur, auk þess sem hann er flestum hnútum kunnugur á kvikmyndamarkaðnum.

Nánari upplýsingar og rafræn umsóknargögn hér.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica