HIGH FIVE MARGMIÐLUNAREFNI FYRIR BÖRN - UMSÓKNIR
Eftir góðan árangur fyrsta High Five Cross-Media for Kids verkefnisins 2010/2011 gaf Nordisk Film & TV Fund grænt ljós á samskonar verkefni fyrir tímabilið frá nóvember 2012 til mars 2013. Ákvörðunin var tilkynnt á BUFF Financing Forum, fjármögnunarmessu, sem haldin var samhliða BUFF, alþjóðlegu barna- og unglingakvikmyndahátíðinni í Málmey í Svíþjóð, 14. – 16. mars s.l.
High Five Cross-Media for Kids verkefninu var hrint í framkvæmd fyrir tveimur árum sem svari við örri þróun í stafrænu umhverfi og tækni sem börn nota í auknum mæli til að horfa á kvikmyndir – fyrir utan hefðbundnu leiðirnar. Markmiðið framtaksins er að þróa sex til átta öflug, norræn margmiðlunarverkefni og mun Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn sem fyrr stýra verkefninu í samstarfi við breska margmiðlunarfyrirtækið Power to the Pixel. Hvert verkefni á kost á 225 þúsund norskra króna þróunarstyrk, eða ígildi tæpra 5 milljóna íslenskra króna.
Þátttakendur njóta liðsinnis alþjóðlegra sérfræðinga á þróunarferlinu þar til verkefnin verða kynnt í tengslum við BUFF:FF, fjármögnunarmessuna, sem haldin verður í Málmey í mars 2013. Verkefnin eiga að höfða til barna á aldrinum 3ja til 6 ára, 7 til 10 ára og 11 til 13 ára. Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn hvetur eindregið til gagnvirks norræns samstarfs milli sjónvarps- og kvikmyndaiðnaðarins sem og leikjaframleiðenda til að skapa frumlegt og ævintýralegt margmiðlunarefni fyrir börn á Norðurlöndum.
High Five Cross-Media Content for Kids 2010-2011 styrkti sjö verkefni, sem nú eru annað hvort í þróun, framleiðslu eða komin á markað, þ.á.m. Hetjur Valhallar – Þór, sem Caoz framleiddi.
Nánari upplýsingar um umsóknarfrest og fleira eru hér
og hér


