NBS

WIZ-ART, ALÞJÓÐLEG STUTTMYNDAHÁTÍÐ Í LVIV, ÚKRAÍNU - UMSÓKNIR

23.3.2012

wiz-art_2

WIZ-ART, alþjóðlega stuttmyndahátíðin í Lviv, Úkraínu, verður haldin í fimmta sinn dagana 26. – 29. júlí 2012. Umsóknir skal senda á þar til gerðum eyðublöðum ásamt sýnishorni á DVD í pósti með póststimpli eigi síðar en 15. maí n.k.

Félagasamtök, sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni, standa að WIZ-ART stuttmyndahátíðinni, en henni er jafnframt ætlað að vera vettvangur fyrir kvikmyndagerðarfólk til að miðla af reynslu sinni og skiptast á skoðunum. Markmiðið er að skapa alþjóðleg sambönd meðal kvikmyndagerðarfólks hvaðanæva að úr heiminum og efla menningartengsl Úkraínu við önnur Evrópulönd.

Stuttmyndirnar skulu vera að hámarki 30 mínútur og framleiddar eftir 1. janúar 2010. Tilkynnt verður um gjaldgengar myndir  á hátíðina í júní. Á hátíðinni velja þrír alþjóðlegir dómarar myndir í þremur flokkum; bestu leiknu stuttmyndina, bestu teiknimyndina og bestu tilraunamyndina auk þess sem áhorfendur velja sína eftirlætismynd.

Nánari upplýsingar um umsóknir og hátíðina eru hér, ásamt umsóknareyðublaði, sem sendist í pósti til:

WIZ-ART Festival
Palace of Arts,
Kopernik str. 17,
Lviv 79000,
Ukraine




Þetta vefsvæði byggir á Eplica