KVIKMYNDAFRAMLEIÐENDUR Á UPPLEIÐ Í CANNES
Arnar Knútsson hjá Filmus Production var valinn í hóp tuttugu og fimm kvikmyndaframleiðenda frá jafnmörgum Evrópulöndum til að taka þátt í vinnustofu með yfirskriftinni Producers on the Move á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Cannes 2012.
Vinnustofan er á vegum EFP, European Film Production. Kvikmyndamiðstöð Íslands valdi Arnar til þátttöku, en hann framleiddi m.a. kvikmyndina Svartur á leik í leikstjórn Óskars Þórs Axelssonar. Arnar er lengst til hægri á meðfylgjandi mynd ásamt kollegum sínum frá hinum Norðurlöndunum. Honum til hægri handar er Brede Hovland frá Noregi og Liisa Penttilä frá Finnland, en fremstar eru Sandra Harms frá Svíþjóð og Signe Leick Jensen frá Danmörku. Myndina tók Kurt Krieger.
Kvikmyndamiðstöð Íslands er meðal 32 aðildarfélaga EFP samtakanna, en meginmarkmið þeirra er að kynna kvikmyndir frá ólíkum löndum um allan heim. Aðildarfélögin ásamt MEDIA áætlun ESB styðja við framtakið Producers on the Move.


