Kvikmyndamiðstöð íslands

SPENNUMYNDIN FROST SELD TIL BRETLANDS, KANADA OG RÚSSLANDS

23.5.2012

Frost_still_1

Breska dreifingarfyrirtækið Momentum Pictures, hefur keypt sýningarréttinn á spennu- vísindatryllinum Frost af TrustNordisk, sem einnig seldi sýningarréttinn til Entertainment One í Kanada og dreifingarfyrirtækisins Big Movie í Rússlandi.

,,Við teljum að Frost verði nýstárleg og einstaklega hrollvekjandi upplifun fyrir áhorfendur. Okkur er ánægja að færa Bretum frábærar, norrænar kvikmyndir í samstarfi við TrustNordisk,“ sagði Henry Beattie, innkaupastjóri Momentum Pictures, þegar samningar voru í höfn.

Rikke Ennis, framkvæmdastjóri TrustNordisk, bætti um betur og upplýsti að tveggja mínútna kynningarmyndband af Frost hefði fengið stórkostleg viðbrögð. ,,Markaðurinn virðist tilbúinn fyrir vísindatrylli sem gerist á jökli á Íslandi. Meira framandi og jafnframt ógnvekjandi sögusvið er varla hægt að hugsa sér og við bindum miklar vonir við alþjóðlega velgengni myndarinnar,“ sagði Ennis.

Frost hverfist um ungt par, Önnu, sem er sálfræðingur, og Gunnar , kvikmyndagerðarmann, sem koma að mannlausum rannsóknarbúðum á jöklinum. Leiðangursmenn virðast hafa horfið á dularfullan hátt og Anna og Gunnar  standa frammi fyrir óþekktu og banvænu afli.  

Leikstjóri Frosts er Reynir  Lyngdal og framleiðendur Ingvar Þórðarson og Júlíus Kemp hjá KISI, Kvikmyndafélagi Íslands ehf. Meðframleiðendur eru Markus Selin og Jukka Helle (Solar Films) og Karla Stojáková (Axman Production). KISI, Kvikmyndafélag Íslands ehf.,  á alþjóðlegan rétt á endurgerð myndarinnar. SAM-Film annast sölu og dreifingu innanlands.

Frost er styrkt af Kvikmyndamiðstöð Íslands og verður frumsýnd í september 2012.  

Nánari upplýsingar og niðurhal hér.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica