TÆPLEGA 1.5 MILLJARÐA VIÐBÓTARFRAMLAG Í KVIKMYNDASJÓÐ ÍSLANDS
Í fjárfestingaráætlun ríkisstjórnarinnar til þriggja ára, 2013 – 2015, sem ber yfirskriftina ,,Nýjar áherslur í atvinnumálum“ og kynnt var 18. maí s.l. er gert ráð fyrir 1.464 milljóna króna viðbótarframlagi til Kvikmyndasjóðs Íslands; 488 milljónir árlega árin 2013 til 2015.
Á vef forsætisráðuneytisins segir að markmið fjárfestingaáætlunarinnar sé að styðja við hagvöxt og fjölbreytni í atvinnulífi. Áætlunin sé sett fram á grunni þess að ríkissjóður endurheimti stóran hluta af þeim fjármunum sem lagðir voru fram til að endurfjármagna bankakerfið og að með nýjum lögum um fiskveiðistjórnun og veiðigjöld fái þjóðin aukna hlutdeild af arði sjávarauðlinda.
Samkvæmt fjárfestingaráætlun verða framlög til skapandi greina samtals 2.814 milljónir króna; Kvikmyndasjóður fær 1.464 milljónir, Verkefnasjóður skapandi greina 740 milljónir og Netríkið Ísland 600 milljónir. Framangreind fjárfestingarverkefni eru sett fram með fyrirvara um að áætlanir um arð og eignasölu af bönkum gangi eftir.
Nánar um fjárfestingaráætlun ríkisstjórnarinnar á vef Forsætisráðuneytisins.


