RÁÐSTEFNA OG VINNUSTOFA Á VEGUM M@RKETING MOVIES ONLINE
Á vegum Marketing Movies Online, sem hefur það markmið að hjálpa sjálfstæðum kvikmyndafyrirtækjum að verða snjallir kaupendur og notendur markaðssetningar á netinu, eru eftirtaldir viðburðir á döfinni:
Ráðstefna um markaðssetningu á netinu verður haldin í Kvikmyndasafni Lundúna 13. júní, en henni er í stórum dráttum ætlað að leiða saman kvikmyndagerðarmenn og sérfræðinga í markaðssetningu á netinu. Á dagskrá verða m.a. pallborðsumræður, ferilskannanir og vinnustofur um markaðssetningu á félagsmiðlum og gerð svokallaðra viðbóta (apps) fyrir snjallsíma. Í lok ráðstefnunnar gefst þátttakendum kostur á að ræða við sérfræðinga í markaðssetningu á netinu sem og eigendur miðlunarfyrirtækja og mögulega meðeigendur og samstarfsmenn. Nánar um dagskránna hér.
Fjögurra daga vinnustofa, MMO labs, verður haldin 17. – 20. september. Ráðgjafar MMO leiðbeina þátttakendum í þróun áhrifaríkrar markaðsáætlunar á netinu. Umsóknarfrestur er til 2. júlí. Nánar um dagskránna hér.
Heimasíða Marketing Movie Online


