Kvikmyndamiðstöð íslands

HAFSTEINN GUNNAR Á LISTA VARIETY TÍMARITSINS

12.6.2012

Either_Way_main_still

Kvikmyndatímaritið Variety, í samstarfi við samtökin European Film Promotion (EFP) og Karlovy Vary alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Tékklandi valdi Hafstein Gunnar Sigurðsson, leikstjóra og handritshöfund myndarinnar Á annan veg, einn af tíu evrópskum kvikmyndaleikstjórum, sem vert væri að gefa gaum; Variety‘s 10 European Directors to Watch.

Nöfn þessara athyglisverðu leikstjóra, að mati gagnrýnenda Variety, hafa verið gerð heyrum kunn og verða þeir kynntir og myndir þeirra sýndar á fyrrnefndri kvikmyndahátíð í Karlovy Vary (Karlsbað) í sumar. Hafsteinn Gunnar er að vonum ánægður með tilnefninguna og spurður hvor viðtökur myndarinnar hefðu verið á þann veg sem hann bjóst við í upphafi kveðst hann a.m.k. ánægður með að þær hafi ekki verið á annan veg.

Hafsteinn Gunnar er nýkominn heim frá Transilvania, alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Cluj í Rúmeníu, sem haldin var 1. – 10. júní s.l. Þar var Á annan veg valin í hóp tólf mynda, sem kepptu um tilnefninguna Besta mynd hátíðarinnar. Transilvania er ein virtasta kvikmyndahátíð Austur-Evrópu og hefur notið vaxandi viðurkenningar frá því hún var fyrst haldin árið 2002. Sýndar eru hátt í 300 kvikmyndir í ýmsum flokkum og samhliða hátíðinni eru námskeið, pallborðsumræður, tónleikar og ýmsir aðrir viðburðir. Á annan veg var sýnd fyrir fullum sal á þremur sýningum.

Á annan veg er þegar bókuð á tólf kvikmyndahátíðir í ár, en Hafsteinn Gunnar telur líklegt að myndin fari jafnvel víðar. Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Edinborg er næst á dagskrá, 20. júní – 1. júlí og Karlovy Vary hátíðin um svipað leyti, 29. júní – 7. júlí.

Önnur helstu tíðindi af Á annan veg eru að tökum er lokið á bandarískri endurgerð hennar, sem mikil leynd hvíldi yfir þar til greint var frá þeim á vef Variety . Bandaríska útgáfan nefnist Prince Avalanche, leikstjóri er David Gordon Green og með aðalhlutverk fara Paul Rudd og Emile Hirsch.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica