VINNUSTOFA UM STUTTMYNDIR - UMSÓKNARFRESTUR TIL 28. JÚNÍ
Umsóknarfrestur um þátttöku í vinnustofu um stuttmyndir, Short Film Talent Campus, á Nordisk Panoraoma 5 Cities Film Festival 2012 rennur út 28. júní n.k. Vinnustofan er nýlunda á þessari 5 borga kvikmyndahátíð, sem í ár verður haldin í Oulu í Finnlandi dagana 21. – 26. september.
Vinnustofan er vettvangur þar sem þátttakendum gefst tækifæri til að efla tengslanet sín jafnt sem faglega þekkingu og er einkum ætluð: Leikstjórum og framleiðendum eða handritshöfundum sem eiga að baki minnst 1 – 2 stuttmyndir, þar af þarf a.m.k. ein að vera framleidd utan kvikmyndaskóla.
Vinnustofan verður haldin sömu daga og Nordisk Panorama 5 Cities Film Festival.
Nálgast má rafræna umsókn og nánari upplýsingar um tilhögun vinnustofunnar hér.


