ÍSLENSKAR STUTTMYNDIR FYRIR ŻUBROFFKA HÁTÍÐINA
Reykjavík Shorts & Docs kvikmyndahátíðin óskar eftir stuttmyndum, framleiddum á Íslandi 2011 eða 2012, í 120 mínútna stuttmyndaprógramm fyrir ŻUBROFFKA stuttmyndahátíðina, sem haldin verður í Bialystok í Póllandi 5.-9. desember n.k.
Leiknar myndir, heimildamyndir og hreyfimyndir, sem eru allt að 30 mínútur að lengd eru gjaldgengar, en leikstjórar hreyfimynda eru sérstaklega hvattir til að senda inn myndir sínar. Áhugasamir sendi upplýsingar og aðgang að sýningareintaki (online screener) til info@shortsdocsfest.com fyrir 1.ágúst n.k.
Dagskrárstjóri ŻUBROFFKA tekur endanlega ákvörðun um þær íslensku stuttmyndir sem sýndar verða á hátíðinni.
ŻUBROFFKA kvikmyndahátíðin er vettvangur kvikmyndagerðarfólks og almennings. Nánari upplýsingar hér, hér og hér.
Sheffield heimildamyndahátíðin
Reykjavík Shorts & Docs kvikmyndahátíðin efndi til móttöku, Icelandic Delegation Party, á Sheffield heimildamyndahátíðinni, 14. júní s.l. , í samvinnu við hátíðahaldara og sendiráð Íslands í London. Hundruð gesta komu til fundar við íslensku sendinefndina, sem greindi mikinn áhuga á íslenskum heimildamyndum og heimildamyndagerð.
Sheffield heimildamyndahátíðin hefur fest sig í sessi sem ein mikilvægasta heimildamyndahátíð Evrópu en þangað koma árlega tug þúsundir gesta bæði til að sjá það nýjasta í heimildamyndagerð og til að fjármagna og dreifa heimildamyndum.
Ljósmyndir frá móttökunni eru á Facebook síðu Reykjavík Shorts & Docs.
Heimasíða Reykjavík Shorts & Docs kvikmyndahátíðarinnar.


