ELDFJALL HREPPTI SILFUR KASTALANN
Eldfjall, kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, var valin besta leikna kvikmyndin í fullri lengd á FEST 2012, alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni, sem haldin var í Espinho í Portúgal dagana 1. til 8. júlí sl.
Verðlaunin, Castelo de Prata Ficção, eða Silfurkastalinn, sem draga nafn sitt af fornu nafni Esphino og sögufrægs kastala við Silfurstönd Portúgals, eru aðalverðlaun hátíðarinnar, og þykja að vonum mikil viðurkenning.
Eldfjall hefur tekið þátt í á fimmta tug kvikmyndahátíða út um allan heim frá því hún var frumsýnd hér á landi í lok september 2011 og unnið til fjölda verðlauna og viðurkenninga.


