Kvikmyndamiðstöð íslands

DJÚPIÐ Í SÉRFLOKKI Á KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI Í TORONTÓ

26.7.2012

djupid
Kvikmyndin Djúpið í leikstjórn Baltasars Kormáks verður heimsfumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Torontó, Toronto International Film Festival, sem haldin verður í Tórontó í Kanada dagana 6. til 16. september 2012. Myndin verður sýnd í flokki stórmynda, Special Presentations.
 

Baltasar er jafnframt handritshöfundur myndarinnar ásamt Jóni Atla Jónassyni. Einstætt afrek Guðlaugs Friðþórssonar, sem synti í land eftir að Hellisey VE sökk sex km undan Vestmannaeyjum árið 1984, varð þeim innblástur. Fjórir skipsverjar fórust og þrekvirki Guðlaugs vakti gríðarlega athygli innanlands sem utan.

Ólafur Darri Ólafsson fer með aðalhlutverkið í myndinni, sem verður frumsýnd hér á landi 21. september. Aðrir helstu leikendur eru Jóhann G. Jóhannsson, Björn Thors, Stefán Hallur Stefánsson, Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson og Walter Geir Grímsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica