Children

BIRGIT GUÐJÓNSDÓTTIR FYRSTA KONAN Í STJÓRN IMAGO

30.7.2012

imago
Birgit Guðjónsdóttir, kvikmyndatökustjóri, hefur verið valin í sjö manna stjórn IMAGO, samtaka evrópskra kvikmyndatökustóra, og er hún fyrsta konan til að sitja  í stjórn samtakanna.  Síðustu tíu árin hefur Birgitt verið búsett í Berlín.

Birgit hefur unnið að fjölda kvikmynda, heimildamynda og sjónvarpsþátta víða um heim og fengð mörg verðlaun og viðurkenningar í áranna rás. Skemmst er að minnast að hún hlaut gullna túlípanann fyrir kvikmyndatöku á tyrknesku myndinni Our Grand Despair á kvikmyndahátíðinni í Istanbúl í fyrra.  Heimasíða Birgit hér.

Félag íslenskra kvikmyndatökustjóra, ÍKS, hefur verið aðili að IMAGO frá ársbyrjun 2011, en samtökin eru regnhlífarsamtök og hafa innan sinna vébanda ríflega 40 félög.  Yfirlýstur tilgangur IMAGO er að auka veg faglegrar kvikmyndunar og hafa listræn listræn gildi í hávegum.  Nánari upplýsingar hér.

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica