Opið fyrir innsendingar á Sprettfisk 2024
Opnað hefur verið fyrir innsendingar á Sprettfisk, stuttmyndasamkeppni Stockfish-kvikmyndahátíðarinnar sem fer fram í tíunda sinn 4.-14. apríl í Bíó Paradís.
Umsóknarfrestur stendur til 2 febrúar.
Verðlaun verða afhent í fjórum flokkum:
- Besta leikna stuttmyndin
- Besta stutta heimildamyndin
- Besta stutta tilraunamyndin
- Besta tónlistarmyndbandið
Flokkarnir fjórir endurspegla grósku og fjölbreytni kvikmyndagerðar hér á landi. Markmið keppninnar er að vekja athygli á upprennandi kvikmyndagerðarfólki og hvetja til góðra verka með verðlaunum sem geta lagt grunninn að næsta verkefni. Verðlaunin koma frá KUKL tækjaleigu og RÚV. Verðlaunamyndirnar verða sýndar á RÚV og aðgengilegar í spilara RÚV.
Verðlaun
Besta leikna stuttmyndin:
KUKL 1.000.000 úttekt á tækjum.
RÚV 1.000.000 reiðufé:
Best stutta heimildamyndin.
KUKL 500.000 úttekt á tækjum:
RÚV 500.000 reiðufé.
Besta stutta tilraunamyndin:
KUKL 250.000 úttekt á tækjum.
RÚV 250.000 reiðufé.
Besta tónlistarmyndbandið:
KUKL 250.000 úttekt á tækjum.
RÚV 250.000 reiðufé.
Þátttökuskilyrði
- Myndin þarf að vera að hámarki 30 mín í lengd. Framleiðslu ekki lokið fyrir janúar 2023 og íslensk frumsýning nú á Stockfish 2024.
- Aðeins íslensk verk eru tekin til greina þar sem höfundur/leikstjóri og/eða framleiðandi er íslenskur.
- Tónlistarmyndbönd koma aðeins til greina ef leikstjórinn er íslenskur.
- Tónlistarmyndbönd skulu gerð eftir frumsömdu lagi.
Innsendingar eru ókeypis og fara í gegnum filmfreeway.com.
20 stuttmyndir sem valdar verða til keppni verða sýndar á sjálfri hátíðinni.