Um KMÍ
Á döfinni

9.1.2024

Fjórar íslenskar kvikmyndir og samframleiðslur sýndar á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg – Tilverur Ninnu Pálmadóttur í keppnisflokki

Tvær kvikmyndir og tvær samframleiðslur frá Íslandi verða sýndar á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg 2024. Hátíðin fer fram 26. janúar - 4. febrúar.

Tilverur, í leikstjórn Ninnu Pálmadóttur, keppir um verðlaun á hátíðinni í flokki norrænna mynda og Kuldi, í leikstjórn Erlings Thoroddsen, er sýnd í Nordic Light hluta hátíðarinnar. Tilverur var heimsfrumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto síðasta haust. Kuldi var frumsýnd á Íslandi í september.

Eternal, í leikstjórn Ulaa Salim, keppir líkt og Tilverur um verðlaun á hátíðinni í flokki norrænna kvikmynda. Myndin er epískur vísindaskáldskapur um mann sem þarf að fórna hinni fullkomnu ást til að koma í veg fyrir glötun mannkyns. Myndin er dönsk-íslensk samframleiðsla. Framleiðendur eru Daniel Mühlendorph hjá Hyæne Film og Grímar Jónsson og Tjörvi Þórsson hjá Netop Films. Halldóra Geirharðsdóttir fer með eitt hlutverka í myndinni.

Smoke Sauna Sisterhood, heimildamynd Önnu Hints, er svo sýnd í Voyage hluta hátíðarinnar. Myndin er samframleiðsla milli Eistlands, Frakklands og Íslands. Hún hefur verið sýnd á mörgum af helstu kvikmyndahátíðum heims og hlaut nýverið Evrópsku kvikmyndaverðlaunin sem besta heimildamyndin.