Um KMÍ
Á döfinni

19.4.2024

Einskonar ást frumsýnd

Kvikmyndin Einskonar ást verður frumsýnd á Íslandi í dag, 19. apríl. 

https://www.youtube.com/watch?v=S5Eo98Qn4Yw

Einskonar ást er nútímasaga um fjórar ungar konur. Þær reyna að fóta sig í flóknum ástarsamböndum, en freistingar á borð við sykurpabba og OnlyFans flækja málin. Í leit sinni að bestu útgáfunum af sjálfum sér standa þær frammi fyrir valinu á milli glansmyndar og sannrar ástar.

Leikstjóri og handritshöfundur er Sigurður Anton og með aðalhlutverk fara Kristrún Kolbrúnardóttir, Magdalena Tworek, Edda Lovísa Björgvinsdóttir, Laurasif Nóra.

Framleiðendur myndarinnar eru Júlíus Kemp og Ingvar Þórðarson hjá Kvikmyndafélagi Íslands.