FRÉTTIR
Úthlutanir 10. júlí 2003
Fréttatilkynning frá Kvikmyndamiðstöð
Ákvarðanir hafa verið teknar um styrkveitingar úr Kvikmyndasjóði til framleiðslu kvikmynda og er það í fyrsta sinn sem veitt er í samræmi við ný lög og reglugerð um Kvikmyndasjóð.
Alls bárust 255 umsóknir og skiptust þær þannig:
Leiknar kvikmyndir í fullri lengd
Framleiðsla: 39 umsóknir
Handrit, þróun og eftirvinnsla: 71 umsóknir
Leikið sjónvarpsefni
Framleiðsla: 7 umsóknir
Handrit og þróun: 11 umsóknir
Stutt- og heimildamyndir
Framleiðsla: 77 umsóknir
Handrit, þróun og eftirvinnsla: 50 umsóknir
Niðurstöðu um styrkveitingar í flokki handrita, þróunar og eftirvinnslu fyrir kvikmyndir og sjónvarpsefni er að vænta fyrir 1. september n.k.
Kvikmyndaráðgjafar hafa fjallað efnislega um umsóknir og gert tillögur um styrki og í framhaldi verið teknar ákvarðanir sem meðal annars miða að því að þau verkefni sem langt eru komin í undirbúning hafi forgang.
Í framtíðinni er stefnt að því að opið verði fyrir umsóknir árið um kring og að hægt verði að þróa verkefni jöfnum höndum í samráði við kvikmyndaráðgjafa allra deilda.
Kvikmyndaráðgjafi í stutt- og heimildamyndadeild Kvikmyndamiðstöðvar er Kristín B. Pálsdóttir en um leiknar kvikmyndir í fullri lengd og leikið sjónvarpsefni fjalla þau Valdís Óskarsdóttir og Sveinbjörn I. Baldvinsson. Framleiðslustjóri f.h. Kvikmyndamiðstöðvar er Hjörtur Grétarsson.

