Um KMÍ
Á döfinni

16.4.2018

Samstarf norrænna teiknimyndaframleiðanda á Annecy.

Í ár munu norrænir teiknimyndaframleiðendur hafa samstarf um að reka sérstakan bás á MIFA í Annecy 11.-16. júní 2018. Norræna ráðherranefndin veitti framleiðendum sérstakan stuðning að þessu sinni og annast samtök þeirra framkvæmdina.

Markaðurinn fer fram í Annecy, Frakklandi samhliða Annecy alþjóðlegu teiknimyndahátíðinni þar sem sýndar verða yfir 200 teiknimyndir. 

Íslenskir framleiðendur hafa möguleika á að nýta sér básinn til þess að kynna sig og verkefnin sín.

Einnig er möguleiki á að fá afslátt af þátttökugjöldum. 

Áhugasamir hafið samband við Hauk Sigurjónsson haukur@gunhil.com sem situr  í norræna framkvæmdahópnum.