Screen International tekur saman 20 áhugaverðustu myndirnar í Cannes – Kona fer í stríð og Arctic þeirra á meðal
Hið virta kvikmyndatímarit Screen International hefur tekið saman 20 áhugaverðustu kvikmyndirnar sem verða sýndar á Cannes kvikmyndahátíðinni. Þeirra á meðal eru kvikmynd Benedikts Erlingssonar, Kona fer í stríð, sem tekur þátt í keppni Critics‘ Week hliðardagskrá hátíðarinnar og Arctic, íslensk minnihlutaframleiðsla meðframleidd af Pegasus, sem er sýnd á miðnætursýningum sem hluti af opinberu vali hátíðarinnar.
Cannes kvikmyndahátíðin, sem er ein sú stærsta í heimi, mun fara fram frá 8. – 19. maí.
Kona fer í stríð segir frá kórstjóra á fimmtugsaldri sem ákveður að bjarga heiminum og lýsir yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Hún gerist skemmdarverkamaður og er tilbúin til að fórna öllu fyrir móður jörð og hálendi Íslands, þar til munaðarlaus stúlka stígur inn í líf hennar. Að bjarga einu barni eða að bjarga heiminum?
Arctic segir frá manni sem er strand á Norðurpólnum. Björgun virðist loks í aðsigi en fer út um þúfur vegna hræðilegs slyss. Hann þarf þá að ákveða hvort hann bíði áfram eftir björgun í hinum tiltölulega öruggu búðum eða haldi í hættulegan leiðangur í þeirri von að bjargast fyrr.