Um KMÍ
Á döfinni

24.3.2017

Série Series óskar eftir umsóknum

Série Series vinnustofan óskar eftir umsóknum. Série Series er Evrópsk vinnustofa fyrir sjónvarpsþætti sem haldin er árlega í Fontainebleau, Frakklandi. Hátíðin er vettvangur fyrir fagfólk sem kemur að gerð sjónvarpsþátta til þess að kynna efni sitt, styrkja tengslanet og kynna verkefni í þróun.

Hátíðin fer fram dagana 28. til 30. júní. Umsóknarfrestur er til 30. apríl nk.

Allar nánari upplýsingar um vinnustofuna og hvernig skuli sækja um er að finna á heimasíðu Série Series