Um KMÍ
Á döfinni

9.4.2019

Síminn orðinn aðili að Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðnum

Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn (Nordisk Film & TV Fond) hefur gefið út þá tilkynningu að Síminn sé orðinn aðili að sjóðnum. Nú þegar á Íslandi eru Kvikmyndamiðstöð Íslands, RÚV og Stöð 2 aðilar að sjóðnum.  

Tilgangur Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins er að efla framleiðslu norræns kvikmynda- og sjónvarpsefnis, með því að taka þátt í lokafjármögnun bíómynda, sjónvarpsmynda og þáttaraða og skapandi heimildamynda. 

Aðilar að sjóðnum eru norrænu kvikmyndastofnanirnar og sjónvarpsstöðvar í almanna- og einkaeigu. Alls eru aðilar orðnir 19 eftir að Síminn bættist í hópinn.  

Hér má sjá tilkynninguna í heild sinni.