Um KMÍ
Á döfinni

13.9.2017

Strategic Partners hefst í Halifax í dag

Í dag hefst samframleiðslu - og fjármögnunarmarkaðurinn Strategic partners sem fer fram í Halifax, Kanada, dagana 14. -16. september. Markmið markaðarins er að stuðla að samvinnu milli Norður Ameríku og Evrópu. 

Stragetic Partners, sem fer nú fram í 20. skiptið, hefur nú annað árið í röð þar sem sérstök áhersla er lögð á Norðurlöndin. 

Markaðurinn, sem er fyrir framleiðendur kvikmynda sem og sjónvarpsefnis, leggur áherslu á tengslamyndun og tækifæri til þess að kynna verkefni í þróun á öllum stigum. Íslenskir framleiðendur sem valdir voru til þátttöku í ár eru frá fyrirtækjunum Pegasus og True North / Mystery. 

Kvikmyndamiðstöð Íslands er einn af styrktaraðilum markaðarins.