Um KMÍ
Á döfinni

2.3.2017

Sunny Side of the Doc óskar eftir umsóknum

Heimildamyndahátíðin Sunny Side of the Doc óskar eftir umsóknum. Umsóknarfrestur rennur út 21. apríl 2017. Hátíðin fer fram í La Rochelle, Frakklandi frá 19. – 22. júní 2017.

Sunny Side of The Doc hátíðin er margþættur vettvangur fyrir heimildamyndagerðamenn þar sem hægt er að sækja um eftir því á hvaða stigi verkefni umsækjanda er. Þannig er hægt að senda inn verkefni sem eru í þróun og verkefni sem eru þegar í framleiðslu. Tekið er við öllum tegundum heimildaverkefna.

Nánari upplýsingar um hátíðina má nálgast á heimasíðu Sunny Side of the Doc. Umsóknareyðublað fyrir verkefni sem eru í þróun og verkefni sem eru þegar í framleiðslu má nálgast hér.