Um KMÍ
Á döfinni

12.2.2018

Tilnefningar til Edduverðlaunanna 2018 tilkynntar –Fangar og Undir trénu með flestar tilnefningar

Tilkynnt hefur verið um allar tilnefningar til Edduverðlaunanna 2018. Fangar hlaut flestar tilnefningar, 14 talsins, og Undir trénu hlaut næstflestar, 12 tilnefningar.

Eddan 2018, uppskeruhátíð Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar (ÍKSA), verður haldin hátíðleg sunnudagskvöldið 25. febrúar á hótel Hilton Reykjavík Nordica. Verðlaunaafhendingin verður í beinni útsendingu á RÚV og hefst klukkan 20:15.

Meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar velja nú á milli þeirra tilnefndu og kjósa um verðlaunahafa.

Verðlaunaflokkarnir eru 26, auk heiðursverðlauna. nýjum flokki hefur verið bætt við, sem er „Upptöku- eða útsendingarstjóri ársins, lifandi viðburðir í sjónvarpi.“ Alls 27 verðlaun.

Almenn kosning mun fara fram á ruv.is um „Sjónvarpsefni ársins" og keppa 9 verk um þau verðlaun.

Hér að neðan er að finna allar tilnefningar:

Kvikmynd ársins

Svanurinn

Undir trénu

Vetrarbræður

Leikstjórn ársins

Ása Helga Hjörleifsdóttir fyrir Svaninn

Hafsteinn Gunnar Sigurðsson fyrir Undir trénu

Ragnar Bragason fyrir Fanga

Leikari í aðalhlutverki

Elliott Crosset Hove fyrir Vetrarbræður

Jóhannes Haukur Jóhannesson fyrir Ég man þig

Steinþór Hróar Steinþórsson fyrir Undir trénu

Leikkona í aðalhlutverki

Edda Björgvinsdóttir fyrir Undir trénu

Gríma Valsdóttir fyrir Svaninn

Heiða Rún Sigurðardóttir fyrir Stellu Blómkvist

Leikari í aukahlutverki

Lars Mikkelsen fyrir Vetrarbræður

Sigurður Sigurjónsson fyrir Undir trénu

Þorsteinn Bachmann fyrir Undir trénu

Leikkona í aukahlutverki

Nína Dögg Filippusdóttir fyrir Fanga

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir fyrir Fanga

Unnur Ösp Stefánsdóttir fyrir Fanga

Leikið sjónvarpsefni ársins

Fangar

Loforð

Stella Blómkvist 

Sjónvarpsefni ársins – Almenn kosning á ruv.is

Fangar

Fósturbörn

Kveikur

Leitin að upprunanum

Loforð

Opnun

Stella Blómkvist

Ævi

Örkin

Heimildamynd ársins

Háski fjöllin rumska

Out of Thin Air

Reynir sterki 

Stuttmynd ársins

Atelier

Frelsun

Munda

Handrit ársins

Ása Helga Hjörleifsdóttir fyrir Svaninn

Huldar Breiðfjörð og Hafsteinn Gunnar Sigurðsson fyrir Undir trénu

Margrét Örnólfsdóttir og Ragnar Bragason fyrir Fanga

Kvikmyndataka ársins

Jakob Ingimundarson fyrir Ég man þig

Martin Neumeyer fyrir Svaninn

Árni Filippusson fyrir Fanga

Klipping ársins

Guðni Hilmar Halldórsson fyrir Stellu Blómkvist

Kristján Loðmfjörð fyrir Undir trénu

Valdís Óskarsdóttir, Sigurður Eyþórsson og Sverrir Kristjánsson fyrir Fanga

Tónlist ársins

Daníel Bjarnason fyrir Undir trénu

Gunnar Örn Tynes og Örvar Smárason fyrir Svaninn

Pétur Ben fyrir Fanga

Brellur ársins

Kontrast, Davíð Jón Ögmundsson, Sigurgeir Arinbjarnarson og Arnar Jónsson fyrir Stellu Blómkvist

Pétur Karlsson fyrir Svaninn

The Gentlemen Broncos, Alexander Schepelern, Emil Pétursson og Snorri Freyr Hilmarsson fyrir Undir trénu

Búningar ársins

Eva Vala Guðjónsdóttir fyrir Stellu Blómkvist

Helga Rós V. Hannam fyrir Fanga

Sylvia Dögg Halldórsdóttir fyrir Svaninn

Gervi ársins

Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Out of Thin Air

Áslaug Dröfn Sigurðardóttir fyrir Stellu Blómkvist

Áslaug Dröfn Sigurðardóttir fyrir Fanga

Hljóð ársins

Björn Viktorsson, Frank Mølgaard Knudsen og Sylvester Holm fyrir Undir trénu

Huldar Freyr Arnarson, Pétur Einarsson og Daði Georgson fyrir Fanga

Tiina Andreas fyrir Svaninn

Leikmynd ársins

Haukur Karlsson fyrir Stellu Blómkvist

Heimir Sverrisson fyrir Fanga

Snorri Freyr Hilmarsson fyrir Undir trénu

Barna- og unglingaefni ársins

Loforð

Sumarbörn

Örkin

Frétta- eða viðtalsþáttur ársins

Auðæfi hafsins 2

Fósturbörn

Kveikur

Menningarþáttur ársins

Framapot

Kiljan

Klassíkin okkar

Opnun

Tungumál framtíðarinnar

Mannlífsþáttur ársins

Hæpið

Leitin að upprunanum

Paradísarheimt

Ævar vísindamaður

Ævi

Skemmtiþáttur ársins

Andri á flandri í túristalandi

Áramótaskaup 2017

Hulli 2

Sjónvarpsmaður ársins

Guðrún Sóley Gestsdóttir fyrir Kastljós og Menninguna

Sigríður Halldórsdóttir fyrir Ævi

Sigrún Ósk Kristjánsdóttir fyrir Leitina að upprunanum

Sigyn Blöndal fyrir Stundina okkar

Unnsteinn Manuel Stefánsson fyrir Hæpið

Upptöku- eða útsendingastjórn ársins

Helgi Jóhannesson og Vilhjálmur Siggeirsson fyrir Söngvakeppnina 2017

Helgi Jóhannesson fyrir Njálu

Jón Haukur Jensson fyrir Voice Live

Þór Freysson fyrir Kórar Íslands

Þór Freysson fyrir Nýdönsk: sjálfshátíð í sjónvarpssal