Um KMÍ
Á döfinni

17.11.2017

Varnarliðið frumsýnd í Bíó Paradís

Heimildamyndin Varnarliðið - Kaldastríðsútvörður sem leikstýrt er af Konráð Gylfasyni og Guðbergi Davíðssyni var frumsýnd í Bíó Paradís miðvikudaginn 15. nóvember fyrir fullum sal. Myndin fór í almennar sýningar í Bíó Paradís 16. nóvember. 

Þeir skrifa einnig handrit myndarinnar sem þeir byggðu á rannsóknarvinnu Friðþórs Eydal sem er sérstaklega fróður um varnarliðið. 

Í myndinni, sem er saga Bandaríkjahers á Íslandi 1951-2006, er meðal annars rætt við fyrrum hermenn og íslenska starfsmenn Varnarliðsins, sem segja sögur úr lífi sínu og af samskiptum við herinn. Mikið af myndefni sem ekki hefur sést áður hefur verið safnað saman bæði hér á Íslandi og erlendis.

Framleiðandi myndarinnar er Ljósop og er meðframleiðandi myndarinnar KAM film sem hefur áður framleitt kvikmynd um herstöðina. 
Myndin er unnin í samvinnu við RÚV. Þulur í myndinni er Sigurþór Heimisson, leikari.