Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

NBS

FRÉTTIR

15.5.2012 FRÉTTIR : VINNUSTOFA Í KVIKMYNDAKLIPPINGU Í NOREGI

ffl_logo
Portúgalska fyrirtækið Fest Film Lab, sem sérhæfir sig í námskeiðum og vinnustofum fyrir kvikmyndagerðarfólk, efnir í samvinnu við Filmkraft Rogaland til vinnustofu í kvikmyndaklippingu í Stavangri í Noregi dagana 8. – 9. september 2012. Lesa meira
 

7.5.2012 FRÉTTIR : VIÐBURÐARÍK REYKJAVÍK SHORTS & DOCS HÁTÍÐ

reykjavikshortsanddocs_logo
Vinnustofur, kynning á dreifingu kvikmynda og fjármögnun heimildamynda, auk umræðufunda, eru meðal viðburða á Reykjavík Shorts & Docs hátíðinni, sem haldin er í Bíó Paradís dagana 6. – 9. maí. Lesa meira
 

4.5.2012 FRÉTTIR : CINEKID 2012 KALLAR EFTIR UMSÓKNUM

logo_cinekid_2012
Barnakvikmynda-, sjónvarps- og margmiðlunarhátíðin Cinekid 2012, sem haldin verður 17. – 26. október í Amsterdam, Hollandi, kallar eftir umsóknum. Umsóknarfrestur er til 1. júlí fyrir kvikmyndir í fullri lengd og einnig til þátttöku í Junior fjármögnunarmessunni í tengslum við hátíðina dagana 23. – 26. október. Lesa meira
 

3.5.2012 FRÉTTIR : FJÁRMÖGNUNARMESSA FYRIR HEIMILDAKVIKMYNDIR

filmcontacktnord
Opnað hefur verið fyrir skráningu umsókna á Nordisk Forum fjármögnunarmessu fyrir heimildakvikmyndir, sem haldin verður dagana 23. til 25. september í tengslum við Nordisk Panorma – 5 Cities Film Festival í Oulu í Finnlandi, 21. til 26. september 2012. Lesa meira
 

2.5.2012 FRÉTTIR : ELDFJALL BEST Í BRADFORD

Volcano_still2
Kvikmyndin Eldfjall í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar bar sigur úr býtum í samkeppni um bestu leiknu kvikmyndina í fullri lengd á Bradford alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni, sem haldin var í samnefndri borg á Bretlandi dagana 19. – 29. apríl sl. Lesa meira
 

2.5.2012 FRÉTTIR : KYNNING - FJÁRMÖGNUNARTÆKIFÆRI FYRIR HEIMILDAMYNDAGERÐARFÓLK

nordic_logo
Fulltrúi Norræna kvikmynda og sjónvarpssjóðsins kynnir fjármögnunartækifæri fyrir heimildamyndagerðarfólki á Reykjavík Shorts & Docs kvikmyndahátíðinni 6.-9.maí 2012. Lesa meira
 

24.4.2012 FRÉTTIR : KVIKMYNDAFRAMLEIÐENDUR Á UPPLEIÐ

efp
Samhliða Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Cannes, 16. – 27. maí 2012, efna samtökin EFP, European Film Promotion, til vinnustofu fyrir 25 valda kvikmyndaframleiðendur frá jafnmörgum Evrópulöndum. Vinnustofan verður haldin 19. – 22. maí og er Arnar Knútsson hjá Filmus Production í hópi útvalinna. Lesa meira
 

23.4.2012 FRÉTTIR : PARÍSARVERKEFNIÐ - UMSÓKNARFRESTUR TIL 10. MAÍ

Paris_Project
Hluti af Parísarverkefninu í tengslum við Paris Cinema alþjóðlegu kvikmyndahátíðina er vinnustofa fyrir framleiðendur kvikmynda á eftirvinnslustigi og hugsanlega samstarfsaðila, s.s. fjármögnunar-, sölu-, umboðs- og/eða dreifingaraðila. Lesa meira
 

17.4.2012 FRÉTTIR : PIXEL MARKAÐURINN - OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR

Power_to_the_pixel
Power to the Pixel efnir til umræðuvettvangs, Cross-Media Forum, fyrir fagfólk á öllum sviðum kvikmyndamiðlunar, í London dagana 16. til 19. október 2012. Hápunkturinn er markaður, The Pixel Market, sem haldin er 17. til 18. október. Umsóknir um þátttöku þurfa að hafa borist fyrir 20. júlí n.k. Lesa meira
 

13.4.2012 FRÉTTIR : NORDISK PANORAMA - UMSÓKNARFRESTUR RENNUR ÚT 15. MAÍ

filmcontacktnord
Umsóknarfrestur fyrir stutt- og heimildamyndir, framleiddar árið 2012, á Nordisk Panorama – 5 Cities Film Festival 2012 rennur út 15. maí n.k. Í ár verður þessi 5 borga kvikmyndahátíð haldin í Oulu í Finnlandi dagana 21. – 26. september. Lesa meira
 

23.3.2012 FRÉTTIR : WIZ-ART, ALÞJÓÐLEG STUTTMYNDAHÁTÍÐ Í LVIV, ÚKRAÍNU - UMSÓKNIR

wiz-art_2
WIZ-ART, alþjóðlega stuttmyndahátíðin í Lviv, Úkraínu, verður haldin í fimmta sinn dagana 26. – 29. júlí 2012. Umsóknir skal senda á þar til gerðum eyðublöðum ásamt sýnishorni á DVD í pósti með póststimpli eigi síðar en 15. maí n.k. Lesa meira
 

21.3.2012 FRÉTTIR : EFA VINNUSTOFA 2012: HLJÓÐRÁS MYNDANNA - UMSÓKNARFRESTUR RENNUR ÚT 25. MAÍ

efa
Evrópska kvikmyndaakademían, European Film Academy, heldur vinnustofuna The Sound of the Image, eða Hljóðrás myndanna, fyrir sérfræðinga í kvikmyndahljóði, frá 2. til 8. júlí 2012 í Berlín og Potsdam Í Þýskalandi. Umsóknarfrestur rennur út 25. maí. Lesa meira
 

19.3.2012 FRÉTTIR : HIGH FIVE MARGMIÐLUNAREFNI FYRIR BÖRN - UMSÓKNIR

100319085419_dc0f4c3582_large
Eftir góðan árangur fyrsta High Five Cross-Media for Kids verkefnisins 2010/2011 gaf Nordisk Film & TV Fund grænt ljós á samskonar verkefni fyrir tímabilið frá nóvember 2012 til mars 2013. Lesa meira
 

15.3.2012 FRÉTTIR : ÚTRÁS REYKJAVÍK Í NEW YORK

Revolution_Reykjavik_Still

Útrás Reykjavík, stuttmynd í leikstjórn Ísoldar Uggadóttur, hefur verið valin á kvikmyndahátíðina New Directors/New Films, sem haldin verður í 41. sinn í New York dagana 21. mars til 1. apríl 2012.

Lesa meira
 

15.3.2012 FRÉTTIR : LONGINOTTO VERNDARI REYKJAVÍK SHORTS DOCS KVIKMYNDAHÁTÍÐARINNAR

Reykjavik_shortsanddocs
Breska heimildamyndagerðarkonan Kim Longinotto er verndari Reykjavík Shorts & Docs kvikmyndahátíðarinnar, sem haldin verður 6. – 9. maí n.k. Longinotto hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir kvikmyndir sínar og hefur frá fyrstu tíð sýnt mannréttindum og málefnum kvenna mikinn áhuga Lesa meira
 

14.3.2012 FRÉTTIR : TUTTUGU ÍSLENSKAR KVIKMYNDIR Í LINCOLN CENTER

Lincoln_Center
Íslenskar kvikmyndir eru í brennidepli í Lincoln Center listamiðstöðinni í New York dagana 18. til 26. apríl n.k. Sýndar verða átján kvikmyndir, sem spanna rúmlega sex áratugi í kvikmyndasögu Íslands, allt frá fyrstu talkvikmyndinni 1949 til kvikmynda, sem frumsýndar voru síðla árs 2011. Yfirskrift sýninganna er: Images from the Edge: Classic and Contemporary Films from Iceland, eða: Myndir frá jaðrinum: Sígildar og nýjar íslenskar kvikmyndir. Lesa meira
 

12.3.2012 FRÉTTIR : AMMA LO-FI Á SOUTH BY SOUTHWEST KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI

sxsw-logo
Sýningar standa yfir á heimildamyndinni Amma Lo-Fi – Kjallaraspólur Sigríðar Níelsdóttur, á South by Southwest, SXSW, kvikmyndahátíðinni í Austin, Texas, Bandaríkjunum, sem haldin er dagana 9. til 18. mars 2012. Lesa meira
 

8.3.2012 FRÉTTIR : NORRÆN MENNINGARHÁTÍÐ Í KENNEDY CENTER

kennedy-center-address
Menningarstofnunin Kennedy Center í Washington DC stendur fyrir norrænni menningarhátíð dagana 19. febrúar til 17. mars 2013 með fjölda menningarviðburða frá Norðurlöndunum og sjálfsstjórnarsvæðunum. Lesa meira
 

1.3.2012 FRÉTTIR : POWER TO THE PIXEL NÁMSKEIÐ - UMSÓKNARFRESTUR RENNUR ÚT 30. MARS

Pixel_Lab_2012_Blackbgd
Pixel námskeið í þremur áföngum á vegum Power to the Pixel verður haldið 1. – 7. júlí 2012 í Potsdam, Þýskalandi, þá í fjarnámi þar til í september og loks 15. – 18. október í London. Umsóknarfrestur rennur út 30. mars. Lesa meira
 

27.2.2012 FRÉTTIR : KVIKMYNDAHÁTÍÐIR 2012 VIÐURKENNDAR AF FIAPF

FIAPF
FIAPF, www.fiapf.org, The International Federation of Film Producers Associations, hefur birt lista yfir viðurkenndar alþjóðlegar kvikmyndahátíðir auk greinargerðar um ábyrgð og skilyrði, sem hátíðirnar þurfa að uppfylla til að fá faggildingu. Lesa meira
 

24.2.2012 FRÉTTIR : KVIKMYNDAVEFURINN.IS - MIÐLÆGUR GAGNAGRUNNUR UM ÍSLENSKAR KVIKMYNDIR

KMI_logo
Miðlægur gagnagrunnur, kvikmyndavefurinn.is, með ítarlegum upplýsingum, á íslensku og ensku, um íslenskar kvikmyndir verður formlega opnaður í húsakynnum Kvikmyndamiðstöðvar Íslands kl. 15.00 í dag, föstudaginn 24. febrúar 2012. Kvikmyndavefurinn hefur verið í smíðum um nokkurt skeið og hefur nú þegar að geyma nöfn um 8.000 manns, 700 fyrirtækja og ríflega 1.200 kvikmyndatitla Lesa meira
 

24.2.2012 FRÉTTIR : HÖFUNDARÉTTUR, EVRÓPSK SAMFRAMLEIÐSLA OG STAFRÆN STEFNUMÓTUN

epi_logo.689
Erich Pommer stofnunin (Potsdam í Þýskalandi) stendur fyrir þremur námskeiðum, sérsniðnum fyrir fagfólk í evrópskri sjónvarps- og kvikmyndagerð, sem vill fræðast um höfundarétt, evrópska samframleiðslu og stafræna stefnumótun í evrópsku lagaumhverfi. Lesa meira
 

23.2.2012 FRÉTTIR : NUFF 2012 - UMSÓKNARFRESTUR 1. MARS

NUFF_formlogo
Kvikmyndahátíð ungs fólks á Norðurlöndum, Nordisk Ungdoms Filmfestival, NUFF 2012, , sem haldin verður í Tromsø í Noregi 7. til 17. júní n.k., kallar eftir umsóknum um þátttöku í kvikmyndasamkeppni hátíðarinnar. Umsóknarfrestur er til 1. mars 2012. Lesa meira
 

21.2.2012 FRÉTTIR : 6 DAGA NÁMSKEIÐ HJÁ BINGER FILMLAB Í AMSTERDAM

Binger_logo
Binger Filmlab í Amsterdam, alþjóðleg þróunarmiðstöð fyrir leiknar kvikmyndir og heimildamyndir, heldur 6 daga handritanámskeið dagana 23. – 25. mars og 20. – 22. apríl 2012. Umsóknarfrestur rennur út 24. febrúar. Lesa meira
 

20.2.2012 FRÉTTIR : EDDUVERÐLAUNIN 2012 - ELDFJALL VALIN BESTA KVIKMYNDIN

Eddan-2012
Edduverðlaunin 2012 voru afhent við hátíðlega athöfn í Gamla bíói þann 18. febrúar 2012 . Kvikmyndin Eldfjall, var valin besta mynd ársins og leikstjóri myndarinnar, Rúnar Rúnarsson, besti leikstjóri og handritshöfundur ársins. Aðalleikarar Eldfjalls, Margrét Helga Jóhannsson var valin besta leikkonan og Theódór Júlíusson besti leikarinn. Lesa meira
 

16.2.2012 FRÉTTIR : TRUSTNORDISK SELUR SVARTAN Á LEIK

Svartur_a_leik_still1
TrustNordisk, sem annast sölu og dreifingu erlendis á kvikmyndinni Svartur á leik, landaði samningum við Koch Media (Þýskaland), Wild Bunch (Belgía, Holland og Lúxemborg) og Estin Film (Eistland) á Evrópumarkaði (EFM) Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Berlín 2012. Lesa meira
 

15.2.2012 FRÉTTIR : HETJUR VALHALLAR Á TOPPINN Í SUÐUR-KÓREU

LoV_Thor_framefromfilm_03_august2010_WIP_Klippt
Þrívíddarteiknimyndin Hetjur Valhallar – Þór í leikstjórn Óskars Jónassonar fékk mestu aðsókn erlendra kvikmynda þegar hún var frumsýnd í Suður-Kóreu í síðustu viku. Lesa meira
 

14.2.2012 FRÉTTIR : SHOOTING STARS - VERÐLAUNAAFHENDING Í BERLINALE HÖLLINNI

Shooting_stars_2012
Tíu leikarar og leikkonur frá jafnmörgum löndum voru í sviðsljósinu um helgina á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Berlín. Hilmar Guðjónsson er í Shooting Stars hópnum, sem alþjóðleg dómnefnd á vegum European Film Promotion, EFP, tilnefndi efnilegustu, ungu leikarana í Evrópu. Lesa meira
 

10.2.2012 FRÉTTIR : TRUSTNORDISK FÆR ALÞJÓÐLEG SÖLURÉTTINDI Á FROST

Frost_still_1
Sölu- og dreifingafyrirtækið TrustNordisk hefur fengið alþjóðleg söluréttindi á kvikmyndinni Frost, vísindaskáldsögutrylli í leikstjórn Reynis Lyngdals. Mikill áhugi var á myndinni á Norræna kvikmyndamarkaðnum á kvikmyndahátíðinni í Gautaborg, 27. janúar til 6. febrúar s.l., þar sem hún var kynnt sem verk í framleiðslu. Lesa meira
 

10.2.2012 FRÉTTIR : NORDISK PANORAMA - UMSÓKNARFRESTUR 15. FEBRÚAR

filmcontacktnord
Frestur til að skila inn umsóknum á Nordisk Panorama - 5 Cities Film Festival rennur út þann 15. febrúar fyrir heimilda- og stuttmyndir framleiddar árið 2011. Frestur til að skila inn umsóknum fyrir verk framleidd 2012 rennur út 15. maí. Lesa meira
 

10.2.2012 FRÉTTIR : ÍSLENDINGAR Í SVIÐSLJÓSINU Á BERLINALE

Blacks_Game_still1
2 Guns, fyrirhuguð kvikmynd þeirra Baltasar Kormáks og Mark Whalbergs, og Svartur á leik í leikstjórn Óskars Þórs Axelssonar vekja mikla athygli á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Berlín 2012, Berlinale, sem haldin er dagana 9. til 19. febrúar. Lesa meira
 

10.2.2012 FRÉTTIR : SUMARSKÓLI FYRIR UPPRENNANDI KVIKMYNDAGERÐARFÓLK Í AMSTERDAM

idfa_LOGO
Sumarskóli IDFAkademíunnar, í Amsterdam, Hollandi, kallar eftir umsóknum um skólavist frá 18. til 23. júní 2012. Umsóknarfrestur er til 1. apríl n.k. Lesa meira
 

8.2.2012 FRÉTTIR : TRANS ATLANTIC PARTNERS 2012 - UMSÓKNARFRESTUR TIL 20. MARS

transatlantic
Erich Pommer stofnunin (Potsdam, Þýskaland), Strategic Partners (Halifax, Kanada) og IFP, Independent Filmmaker Project (New York, Bandaríkin) efna til þriggja námskeiða fyrir kvikmyndaframleiðendur. Lesa meira
 

8.2.2012 FRÉTTIR : KALIBER35 KALLAR EFTIR UMSÓKNUM

kaliber35
Kaliber 35, alþjóðlega stuttmyndahátíðin í München, sem haldin verður dagana 21. til 27. júní 2012, býður kvikmyndagerðarfólki hvaðanæva úr heiminum að senda inn umsóknir um þátttöku. Lesa meira
 

3.2.2012 FRÉTTIR : TILNEFNINGAR TIL EDDUVERÐLAUNA 2012

edda_2011_brimarar
Tilkynnt var um tilnefningar til Edduverðlauna á blaðamannafundi í Bíó Paradís þann 3. febrúar 2012. Lesa meira
 

3.2.2012 FRÉTTIR : IN A HEARTBEAT VALIN BESTA STUTTMYNDIN Á BARNAKVIKMYNDAHÁTÍÐ Á INDLANDI

Childrens_India

Íslenska stuttmyndin, In a Heartbeat í leikstjórn Karolina Lewicka, var valin besta stuttmyndin á barnakvikmyndahátíðinni, Indian Children‘s Film Festival, sem haldin var í 7. sinn í Bengaluru og fleiri borgum í Karnataka fylki á Indlandi dagana 9. til 14. janúar 2012.

Lesa meira

 

3.2.2012 FRÉTTIR : TÓNLISTARMYNDBÖND AFTUR VERÐLAUNUÐ Á ÍSLENSKU TÓNLISTARVERÐLAUNUNUM

Tonlistarverdlaun_logo
Sú nýjung er tekin upp á Íslensku tónlistarverðlaununum í ár að verðlauna fyrir tónlistarmyndband ársins Lesa meira
 

2.2.2012 FRÉTTIR : STJÖRNUSKIN Á ALÞJÓÐLEGU KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI Í BERLÍN

efp_logo1
Shooting Stars skína skært á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Berlín, Berlinale, sem haldin verður 9. til 19. febrúar 2012. Shooting Stars eru tíu, ungir, leikarar frá jafnmörgum Evrópulöndum, sem alþjóðleg dómnefnd á vegum European Film Promotion, EFP, tilnefndi efnilegustu kvikmyndaleikara Evrópu. Lesa meira
 

1.2.2012 FRÉTTIR : ANDLIT NORÐURSINS OG ROÐLAUST OG BEINLAUST Í ÞESSALÓNÍKU

Tessalonika
Heimildamyndunum Andliti Norðursins í leikstjórn Magnúsar Viðars Sigurðssonar og Roðlaust og beinlaust í leikstjórn Ingvars A. Þórissonar hefur verið boðið að taka þátt í heimildamyndahátíðinni í Þessalóníku, Thessaloniki Documentary Festival, í Grikklandi, sem haldin verður 9. til 18. mars 2012. Lesa meira
 

27.1.2012 FRÉTTIR : FIMM ÍSLENSKAR MYNDIR VALDAR Í KEPPNI Á MINIMALEN STUTTMYNDAHÁTÍÐINNI

Minimalen

Fimm íslenskar myndir voru valdar til að taka þátt í samkeppni, NIFA, um bestu, nýju norrænu stuttmyndina á Minimalen stuttmyndahátíðinni, Minimalen Short Film Festival, sem haldin verður í Þrándheimi í Noregi dagana 14. til 18. mars 2012.

Lesa meira

 

23.1.2012 FRÉTTIR : VINNUSTOFUR UM LEIKNA EVRÓPSKA SJÓNVARPSÞÆTTI

etv_header_952x162px.301

Stofnun Erich Pommer í Þýskalandi, í samvinnu við MediaXchange í Bretlandi, stendur fyrir vinnustofum um nýjungar í gerð evrópskra sjónvarpsþátta.

Lesa meira

 

23.1.2012 FRÉTTIR : ÞRJÁR ÍSLENSKAR KVIKMYNDIR TAKA ÞÁTT Í ALÞJÓÐLEGU KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI Í GAUTABORG

gautaborg

Drama, gaman, hasar og ævintýri ráða í bland ríkjum í þremur íslenskum kvikmyndum – Eldfjalli, Á annan veg og Hetjum Valhallar – Þór, sem taka þátt í GIFF, Göteborg International Film Festival, í Gautaborg, Svíþjóð dagana 27. janúar til 6. febrúar.

Lesa meira

 

18.1.2012 FRÉTTIR : TVÖ ÍSLENSK VERKEFNI VALIN Á WEMW

wemw
Fjármögnunarmessan WEMW, When East Meets West 2012, verður haldin í Trieste á Ítalíu 19. og 20. janúar 2012 og er hún hluti af Trieste kvikmyndahátíðinni. Eftir að hafa metið 182 umsóknir frá 29 Evrópulöndum hefur verið tilkynnt um hvaða 18 verkefni voru valin til almennrar sölukynningar. Lesa meira
 

17.1.2012 FRÉTTIR : NORDISK PANORAMA KALLAR EFTIR UMSÓKNUM

filmcontacktnord
Frestur til að skila inn umsóknum á Nordisk Panorama - 5 Cities Film Festival rennur út þann 15. febrúar fyrir heimilda- og stuttmyndir framleiddar árið 2011. Frestur til að skila inn umsóknum fyrir verk framleidd 2012 rennur út 15. maí. Lesa meira
 

17.1.2012 FRÉTTIR : AMMA LO-FI Á KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI Í ROTTERDAM OG MoMA Í NEW YORK

Grandma_Lo_Fi_Main_still

Heimildamyndin Amma Lo-Fi - Kjallaraspólur Sigríðar Níelsdóttur verður sýnd í flokknum Bright Future á kvikmyndahátíðinni International Film Festival Rotterdam 2012, sem haldin dagana 25. janúar til 5. febrúar n.k. Skömmu síðar heldur Amma Lo-Fi vestur um á tveggja vikna heimildamyndahátíð í hinu virta listasafni MoMA í New York dagana 16. til 28. febrúar n.k.

Lesa meira
 

13.1.2012 FRÉTTIR : SVARTUR Á LEIK TILNEFND TIL TIGER VERÐLAUNA Á IFFR

Blacks_Game_still1
Kvikmynd Óskars Þórs Axelssonar, Svartur á leik, er meðal fimmtán tilnefndra kvikmynda til Tiger verðlaunanna á IFFR kvikmyndahátíðinni, International Film Festival í Rotterdam , sem haldin verður 25. janúar til 5. febrúar nk.

Lesa meira
 

12.1.2012 FRÉTTIR : KVIKMYNDAMIÐSTÖÐ ÍSLANDS AUGLÝSIR EFTIR FRAMLEIÐSLU- OG FJÁRMÁLASTJÓRA

KMI_logo
Staða framleiðslu- og fjármálstjóra Kvikmyndamiðstöðvar Íslands er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til og með 22. janúar nk. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is. Lesa meira
 

5.1.2012 FRÉTTIR : THE GOOD PITCH EUROPE 2012 KALLAR EFTIR UMSÓKNUM

goodpitch

The Good Pitch Europe 2012 kallar eftir umsóknum til þátttöku í fjármögnunarmessu sem haldin verður í London þann 25. júní 2012. Viðburðurinn er ætlaður kvikmyndagerðarmönnum sem vinna að verkefnum tengdum umhverfis- og/eða félagsmálum. Undanfari messunnar eru tvær vinnustofur. Umsóknarfrestur rennur út kl. 16:00 þann 1. febrúar 2012.

Lesa meira

 

20.12.2011 FRÉTTIR : SAMKEPPNI UM OPNUNARATRIÐI VETRARHÁTÍÐAR Í REYKJAVÍK

vetrarhatid2012bordi
Verkefnið felst í að vekja athygli og ánægju íbúa Reykjavíkurborgar og gesta hennar með því að hanna opnunaratriði Vetrarhátíðar í Reykjavík 2012 á fjölförnum en óvæntum og spennandi stað í borgarrýminu. Sóst er eftir útiverki sem höfðar til almennings og inniheldur upplifun, gagnvirkni og gleði. Lesa meira
 

12.12.2011 FRÉTTIR : SAMKOMULAG UM STEFNUMÖRKUN FYRIR ÍSLENSKA KVIKMYNDAGERÐ- OG MENNINGU UNDIRRITAÐ

09.12.2011-Undirritun-samkomulags-um-kvikmyndamal-001
Samkomulag um stefnumörkun fyrir íslenska kvikmyndagerð og kvikmyndamenningu árin 2012– 2015 var undirritað fimmtudaginn 8. desember í Bíó Paradís. Lesa meira
 

9.12.2011 FRÉTTIR : FUNDARBOÐ TIL KVIKMYNDAGERÐARMANNA

KMI_logo

Boðað er til fundar með fagfélögum í kvikmyndagerð og Kvikmyndamiðstöð þriðjudaginn 13. desember kl. 16 í Bíó Paradís.

Lesa meira
 

8.12.2011 FRÉTTIR : REYKJAVÍK SHORTS&DOCS KALLAR EFTIR UMSÓKNUM

Reykjavik_shortsanddocs

Stutt-og heimildamyndahátíðina Reykjavík Shorts&Docs Festival verður haldin dagana 6.-9. maí 2012. Fram til 1.janúar 2012 er ekkert gjald tekið fyrir innsendar myndir en eftir 1. janúar kostar 4000 kr að senda inn hverja kvikmynd. Hægt er að senda inn kvikmyndir á hátíðina fram til 1. mars 2012.

Lesa meira

 

8.12.2011 FRÉTTIR : HILMAR GUÐJÓNSSON VALINN Í HIÐ VIRTA SHOOTING STAR

Hilmar_Gudjonsson

Hilmar Guðjónsson er einn 10 evrópskra leikara sem var valinn í Shooting Star, sem er sérstök kynning á ungum og efnilegum kvikmyndaleikurum sem þykja líklegir til að ná langt í sínu fagi. Hópurinn var kosinn af alþjóðlegri dómnefnd og teljast þeir sem valdir eru Shooting star vera á meðal efnilegustu kvikmyndaleikara Evrópu. Það er European Film Promotion sem stendur fyrir Shooting Star og er Kvikmyndamiðstöð Íslands aðili að þeim samtökum.

Lesa meira

 

5.12.2011 FRÉTTIR : VINNUSTOFA LEIKMYNDAHÖNNUÐA Í KAUPMANNAHÖFN

anothertwodays

Vinnustofa leikmyndahönnuða, Two Days in Copenhagen, fer fram í Kaupmannahöfn 21. – 22. janúar 2012. Sérstakir gestir vinnustofunnar verða BAFTA-verðlaunahafarnir Nathan Crowley (“Public Enemies”, “The Dark Knight”, “The Prestige”, “Insomnia”, “The Dark Knight Rises”) og Sarah Greenwood (“Sherlock Holmes 1+2”, “Hanna”, “Atonement”, “Pride & Prejudice”, “Anna Karenina”). Frekari upplýsinga má nálgast á www.scenograf.dk, með því að senda tölvupóst á another2days@gmail.com eða í gegnum síma +45 3314 3355.

 

5.12.2011 FRÉTTIR : Á ANNAN VEG HLÝTUR VERÐLAUN FYRIR BESTU MYND OG BESTA HANDRIT Í TÓRÍNÓ

Either_Way_main_still

Kvikmyndin Á annan veg eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson hlaut aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar í Tórínó fyrir bestu mynd um helgina. Þá var Á annan veg einnig verðlaunuð fyrir besta handrit og fékk gríðarlega góðar viðtökur á þessari virtu hátíð.

Lesa meira

 

22.11.2011 FRÉTTIR : ÓRÓI VERÐLAUNUÐ Í ÞÝSKALANDI

oroi_nota_i_baekling
Órói eftir Baldvin Z vann "International Youth Film Contest" - flokkinn á exground filmfest sem fram fór í Wiesbaden, Þýskalandi, dagana 11. - 20. nóvember. Órói er fyrsta kvikmynd Baldvins Z í fullri lengd. Órói er sýnd á kvikmyndahátíðinni Tallinn Black Nights Film Festival, sem stendur yfir í Eistlandi dagana 16. - 30. nóvember.

 

21.11.2011 FRÉTTIR : MAMMA GÓGÓ HLÝTUR TVENN VERÐLAUN Í MADEIRA

Gogo_sturtar

Kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Mamma Gógó, hlaut tvenn verðlaun á Funchal kvikmyndahátíðinni sem fram fór í Madeira í Portúgal. Annars vegar fyrir bestu leikkonu (Kristbjörg Kjeld) og hins vegar Silver Funchal City Award - verðlaunin.

Lesa meira
 

15.11.2011 FRÉTTIR : ELDFJALL SLÆR MEISTURUM VIÐ Í DENVER

Volcano_still2
Eldfjall, kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, vann aðalverðlaun dómnefndar á kvikmyndahátíðinni í Denver á sunnudagskvöld. Hátt í hundrað myndir eftir vel þekkta leikstjóra komu til greina.
Lesa meira
 

14.11.2011 FRÉTTIR : 19 ÍSLENSKAR KVIKMYNDIR Á BLACK NIGHTS FILM FESTIVAL Í EISTLANDI

Volcano_still2

19 íslenskar kvikmyndir verða sýndar á kvikmyndahátíðinni Black Nights Film Festival, sem fram fer í Tallinn í Eistlandi dagana 16. – 30. nóvember. Á annan veg eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson verður opnunarmynd Black Nights, Eldfjall eftir Rúnar Rúnarsson er í aðalkeppni hátíðarinnar og Friðrik Þór Friðriksson hlýtur heiðursverðlaun hátíðarinnar.

Lesa meira

 

14.11.2011 FRÉTTIR : AMMA LO-FI BESTA ALÞJÓÐLEGA TÓNLISTARMYNDIN Á CPH:DOX

Grandma_Lo_Fi_Still1_klippt

Amma lo-fi var valin besta alþjóðlega tónlistarmyndin á heimildamyndahátíðinni CPH:DOX, sem fram fór í Kaupmannahöfn dagana 3. – 13. nóvember. Heimildamyndin, sem frumsýnd var á hátíðinni, fjallar um tónlistarkonuna Sigríði Níelsdóttur, sem sjötug byrjaði að taka upp eigin tónlist og gaf út 59 plötur næstu sjö árin á eftir.

 

10.11.2011 FRÉTTIR : WHEN EAST MEETS WEST - UMSÓKNARFRESTUR FRAMLENDGUR TIL 25. NÓVEMBER

Umsóknarfrestur til þátttöku á fjármögnunarmessunni When East Meets West hefur verið framlengdur til 25. nóvember 2011. WEMW er fjármögnunarmessa sem haldin er í Trieste á Ítalíu 19. – 21. janúar. Verkefnum frá Austur-Evrópu og Ítalíu er boðið að taka þátt en í ár er einnig tekið við umsóknum frá norðurlöndunum. Lesa meira
 

7.11.2011 FRÉTTIR : Á ANNAN VEG VERÐLAUNUÐ Í LŰBECK

Either_Way_main_still

Kvikmyndin Á annan veg eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson hlaut Eystrasaltsverðlaunin (Baltic Film Prize) á norrænu kvikmyndahátíðinni í Lübeck í Þýskalandi. Þetta er í 20. sinn sem verðlaunin eru veitt og hafa kvikmyndaleikstjórar á borð við Lars von Trier, Susanne Bier og Friðrik Þór Friðriksson áður veitt þeim viðtöku.

Lesa meira

 

7.11.2011 FRÉTTIR : SOURCES 2 - VINNUSTOFA Í HANDRITSGERÐ

Sources2_logo
Vinnustofa í handritsgerð á vegum Sources 2 fer fram í Tubingen í Þýskalandi 11. – 19. apríl 2012. Umsóknarfrestur rennur út 1. desember 2011. Vinnustofan er ætluð handritshöfundum með kvikmynd í fullri lengd eða heimildamynd (e. creative documentary) í bígerð. Lesa meira
 

7.11.2011 FRÉTTIR : THEODÓR JÚLÍUSSON VALINN BESTI LEIKARINN Í SAO PAULO

Volcano_still2
Theodór Júlíusson var í fyrrinótt útnefndur besti leikarinn á 35.
kvikmyndahátíðinni í Sao Paulo fyrir leik sinn í Eldfjalli, kvikmynd
Rúnars Rúnarssonar. Lesa meira
 

3.11.2011 FRÉTTIR : FJÁRMÖGNUNARMESSAN BELOW ZERO KALLAR EFTIR UMSÓKNUM

edn_logo

Below ZERO er fjármögnunarmessa og vinnustofa tileinkuð heimildamyndum sem fjalla um lífið á Norðurheimskautsslóðum. Messan fer fram Tromsö í Noregi dagana 18. – 21. janúar 2012. Frestur til að sækja um þátttöku rennur út 28. nóvember 2011.

Lesa meira

 

1.11.2011 FRÉTTIR : ELDFJALL VINNUR TIL VERÐLAUNA Á SPÁNI

Volcano_still2
Eldfjall, kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, vann aðalverðlaunin í flokknum Meeting Point á kvikmyndahátíðinni SEMINCI í Valladolid á Spáni nú um helgina.
Lesa meira
 

1.11.2011 FRÉTTIR : 10 ÍSLENSKIR TITLAR Á NORRÆNUM KVIKMYNDADÖGUM Í LŰBECK

Either_Way_main_still

Norrænir kvikmyndadagar í Lübeck fara fram í 53. sinn dagana 2. – 6. nóvember. Tíu íslenskar myndir verða sýndar á hátíðinni – fimm kvikmyndir í fullri lengd, fjórar heimildamyndir og ein stuttmynd.

Lesa meira

 

24.10.2011 FRÉTTIR : ELDFJALL HLÝTUR AÐALVERÐLAUNIN Á KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI Í MONTRÉAL

Volcano_still2

Eldfjall, kvikmynd Rúnars Rúnarssonar, hlaut gullna úlfinn – aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar í Montréal, Festival du Nouveau Cinema. Auk þess hlaut myndin sérstök gagnrýnendaverðlaun samtakanna AQCC, Association québécoise des critiques de cinéma.

Lesa meira

 

19.10.2011 FRÉTTIR : WHEN EAST MEETS WEST ÓSKAR EFTIR UMSÓKNUM

WEMW er meðframleiðslu messa sem haldin er í Trieste á Ítalíu 19. – 21. janúar. Verkefnum frá Austur-Evrópu og Ítalíu er boðið að taka þátt en í ár er einnig tekið við umsóknum frá norðurlöndunum. Tuttugu verkefni komast að og eiga þá möguleika á að finna samframleiðanda. Tekið er á móti umsóknum til 15. nóvember næstkomandi og þarf að senda þær í tölvupósti á netfangið info@wemw.it. Tekið er á móti verkefnum á þróunarstigi, kvikmyndum í fullri lengd sem og heimildarmyndum. Lesa meira
 

18.10.2011 FRÉTTIR : SÆNSKA KVIKMYNDIN SVÍNASTÍAN HLÝTUR KVIKMYNDAVERÐLAUN NORÐURLANDARÁÐS

nordic_logo
Sænska kvikmyndin SVINALÄNGORNA, eða Svínastían er besta norræna kvikmyndin 2011 og því hljóta Pernilla August leikstjóri myndarinnar, og Lolita Ray meðhandritshöfundur hennar og framleiðendurnir Helena Danielsson og Ralf Karlsson Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs á þessu ári. Heiðursformaður dómnefndar, Helen Mirren, greindi frá þessu á fréttamannafundi í Kaupmannahöfn. Lesa meira
 

18.10.2011 FRÉTTIR : ELDFJALL HLÝTUR VERÐLAUN Í CHICAGO

Volcano_still2
Kvikmyndin Eldfjall hlaut Silver Hugo verðlaunin í flokknum New Directors Competition á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Chicago síðastliðinn föstudag. Eldfjall er fyrsta kvikmynd Rúnars Rúnarssonar í fullri lengd en hún var frumsýnd hérlendis 30. september og hefur fengið mikið lof gagnrýnanda. Lesa meira
 

5.10.2011 FRÉTTIR : SPENNANDI DAGSKRÁ Á YOU ARE IN CONTROL

Alþjóðlega ráðstefnan You Are In Control verður haldin í fimmta sinn dagana 10. – 12. október í Hörpu. Hér verða skoðuð framtíðar viðskiptamódel, nýir samstarfsmöguleikar skapandi greina, höundarréttarmál frá ólíkum sjónarhólum, framtíðarsýn hugmyndasmiða og nýir atvinnuhættir á breyttum tímum. Hægt er að skrá sig á ráðstefnuna hérna: http://youareincontrol.is/register-now Lesa meira
 

3.10.2011 FRÉTTIR : NÁMSKEIÐ FYRIR UNGA KVIKMYNDAGAGNRÝNENDUR Í ROTTERDAM

The IFFR Trainee Project for Young Film Critics tekur á móti sex ungum gagnrýnendum (29 ára og yngri) sem fá að fjalla um alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Rotterdam. Verkefnið býr til vettvang fyrir óreynda gagnrýnendur að kynnast óháðum og tilraunarkenndum kvikmyndum. Frekari upplýsingar má finna hérna: http://www.filmfestivalrotterdam.com/professionals/press/iffr_trainee_project_young_film_critics Lesa meira
 

28.9.2011 FRÉTTIR : SUMARLANDIÐ FÆR VERÐLAUN FYRIR BESTA HANDRITIIÐ Í TEXAS

Summerland_still

Sumarlandið hlaut verðlaunum fyrir besta handritið á Fantastic Fest kvikmyndahátíðinni í Texas. Ólafur Egilsson og Grímur Hákonarson skrifuðu handritið sem vann í flokknum Fantastic Features.

Lesa meira
 

19.9.2011 FRÉTTIR : SOURCES 2 PROJECTS AND PROCESS

Sources2_logo
Sources 2 Projects & Process er einstakt námskeið fyrir kennara og áhrifafólk í kvikmyndagerð. Vinnustofan verður haldin 28 september- 2 október. Virtir fyrirlesarar munu stýra tímunum, Ulla Simonen frá Finnlandi, Michael Seeber frá Austuríki og Rolf Orthel frá Hollandi. Lesa meira
 

19.9.2011 FRÉTTIR : BERLINALE CO-PRODUCTION MARKET: ÓSKAR EFTIR UMSÓKNUM

berlinale

Hægt er að senda inn verkefni í leit að alþjóðlegum styrktar- og samstarfsaðilum fram til 27. október. Markaðurinn er að leita að efnilegum verkefnum með fjáröflun á milli 2-10 milljón evra. Um það bil 30 verkefni verða síðan valin til þátttöku.

Lesa meira
 

6.9.2011 FRÉTTIR : DOCXCHANGE FORUM FRAMLENGIR UMSÓKNARFRESTINN TIL 9.SEPTEMBER

filmcontacktnord

Ekki missa af góðu tækifæri til að sjá hvað er að gerast í gagnvirkri heimildamyndagerð. DocXchange Forum verður haldið þann 28. september næstkomandi. Nánari upplýsingar eru að finna hér.

 

2.9.2011 FRÉTTIR : RÁÐSTEFNA UM SKAPANDI GREINAR OG TÆKIFÆRIN Í NETHEIMUM

youareincontroll_ogo

Alþjóðlega ráðstefnan You Are In Control verður haldin í fimmta sinn dagana 10. – 12. október í Hörpu.

Af gefnu tilefni er sérstakur afsláttur veittur fyrir einyrkja/einstaklinga sem vinna við skapandi greinar og fá þeir miða á ráðstefnuna á hálfvirði og borga þar með 10.000 krónur fyrir miðann. Til þess að nýta þetta tilboð er hægt að hafa samband við Bryndísi hjá You Are In Control og þar sem þessir miðar eru í takmörkuðu upplagi og gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær.

Lesa meira

 

30.8.2011 FRÉTTIR : BERLINALE TALENT CAMPUS KALLAR EFTIR UMSÓKNUM FRÁ UNGUM KVIKMYNDAGAGNRÝNENDUM

berlinale

Berlinale Talent Campus, Goethe Institute, og FIPRESCI (the International Federation of Film Critics) kalla eftir umsækjendum fyrir Talent press, þar sem ungum og upprennandi kvikmyndagnrýnendum er boðið að koma og taka þátt í 62. Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Berlín 2012. Nánari upplýsingar eru að finna á www.berlinale-talentcampus.de og www.fipresci.org.

 

26.8.2011 FRÉTTIR : IDFA FORUM ÓSKAR EFTIR VERKEFNUM

idfa_LOGO
IDFA FORUM verður haldið í 19. skipti samhliða IDFA kvikmyndahátíðinni 21-23. nóvember. Umsóknarfrestur um þátttöku rennur út 1. september. Lesa meira
 

25.8.2011 FRÉTTIR : TILMAN SCHEEL FRÁ REELPORT OG EUROPE'S FINEST Á YOU ARE IN CONTROL

tilmanscheel
Tilman Scheel (DE), stofnandi og framkvæmdastjóri Reelport GmbH og Europe’s Finest, verður sérstakur gestur á aþjóðlegu ráðstefnunni You Are In Control sem fram fer í Hörpu 10. – 12. október í ár. Lesa meira
 

24.8.2011 FRÉTTIR : KVIKMYNDIN BRIM FRAMLAG ÍSLANDS TIL NORRÆNU KVIKMYNDAVERÐLAUNANNA

Brim_Still1

Fimm áhrifaríkar en jafnframt afar ólíkar norrænar kvikmyndir keppa um hin eftirsóttu kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs á þessi ári. Íslenski leikstjórinn Árni Ólafur Ásgeirsson, handritshöfundurinn Ottó Geir Borg og framleiðendurnir Þórir Sigurjónsson, Skúli Fr. Malmquist, Grímar Jónsson og Gísli Örn Garðarsson eru tilnefndir til verðlaunanna fyrir kvikmyndina BRIM og keppa við eina mynd frá hverju hinna norrænu ríkjanna: Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð.

Lesa meira

 

24.8.2011 FRÉTTIR : Á ANNAN VEG TIL SAN SEBASTIAN

Either_Way_main_still
Fyrsta kvikmynd Hafsteins Gunnars Sigurðssonar, Á annan veg mun keppa til Kutxa-New Directors verðlaunanna á San Sebastian kvikmyndahátíðinni á Spáni. Hátíðin fer fram 16-24. september og mun kvikmyndin keppa á móti 14 öðrum alþjóðlegum titlum. Lesa meira
 

17.8.2011 FRÉTTIR : ELDJALL SÝND Á KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI Í TORONTO

Volcano_Still_klippt

Eldfjall, fyrsta kvikmynd Rúnars Rúnarssonar í fullri lengd, hefur verið valin á kvikmyndahátíðina í Toronto sem fram fer 8. – 18. september. Eldfjall hefur hlotið mjög góðar viðtökur frá því hún var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes í vor og hlaut meðal annars verðlaun fyrir bestu leikstjórn á kvikmyndahátíðinni í Transilvaniu í júní síðast liðnum.

Lesa meira

 

3.8.2011 FRÉTTIR : HEIMILDAMYNDIN GNARR VERÐLAUNUÐ Í BANDARÍKJUNUM

Gnarr_Poster_still

Heimildamyndin Gnarr eftir Gauk Úlfarsson hlaut tvenn verðlaun á kvikmyndhátíðinni Traverse City Film Festival, sem fram fór dagana 26. – 31. júlí. Gnarr var útnefnd sem besta erlenda heimildamyndin í „Founders“-verðlaunaflokknum og Gaukur Úlfarsson hlaut verðlaun fyrir bestu leikstjórn erlendrar heimildamyndar í flokknum „World Documentary Jury Awards“.

Lesa meira

 

21.7.2011 FRÉTTIR : BERLINALE TALENT CAMPUS - OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR

berlinale_talent_campus_2012

Berlinale Talent Campus fer fram í 10. sinn dagana 11. – 16. febrúar 2012, samhliða kvikmyndahátíðinni í Berlín. Vinnustofan er ætluð kvikmyndagerðarmönnum sem eru stíga sín fyrstu skref í kvikmyndageiranum og hafa áhuga á að læra af virtum sérfræðingum og efla alþjóðlegt tengslanet sitt. Umsóknarfrestur um þátttöku rennur út 5. október 2011.

Lesa meira

 

18.7.2011 FRÉTTIR : SJÖ ÍSLENSKAR MYNDIR VALDAR Í KEPPNI Á NORDISK PANORAMA

filmcontacktnord

Tilkynnt hefur verið hvaða myndir taka þátt í keppni á Nordisk Panorama 2011, sem fram fer í Árhúsum í Danmörku dagana 23. – 28. september. Alls voru 67 myndir valdar í keppni í ár og af þeim eru sjö frá Íslandi.

Lesa meira

 

7.7.2011 FRÉTTIR : VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR Í HÓPI 10 EVRÓPSKRA LEIKSTJÓRA SEM VERT ER AÐ FYLGJAST MEÐ AÐ MATI VARIETY

variety_ten_to_watch_group

Valdís Óskarsdóttir er á meðal 10 evrópskra leikstjóra sem vert er að fylgjast með. Hópurinn, sem valinn var af gagnrýnendum Variety, var kynntur á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Karlovy Vary og myndir eftir leikstjórana sýndar. Nýjasta kvikmynd Valdísar, Kóngavegur, var hluti af þeirri dagskrá.

Lesa meira

 

4.7.2011 FRÉTTIR : IDFA FJÁRMÖGNUNARMESSA OG MARKAÐUR - OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR

Idfa_Logo

Heimildamyndahátíðin IDFA fer fram í 24. sinn í Amsterdam dagana 16. – 27. nóvember. Í tengslum við hátíðina verður haldin fjármögnunarmessa og markaður fyrir heimildamyndir. Frestur til að sækja um þátttöku er 1. september fyrir fjármögnunarmessuna og 1. ágúst / 15. september fyrir markaðinn.

Lesa meira

 

4.7.2011 FRÉTTIR : POWER TO THE PIXEL MARKAÐUR ? OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR

Power_to_the_Pixel

Pixel markaðurinn fer fram 12. – 13. október og er hluti af hinni árlegu Power to the Pixel vinnustofu „Cross-Media Forum“. Markaðurinn er haldinn í tengslum við BFI kvikmyndahátíðina í London og á honum gefst þátttakendum færi á að kynna og fjármagna verkefni sín. Umsóknarfrestur rennur út 29. júlí.

Lesa meira

 

29.6.2011 FRÉTTIR : NORDISK FORUM 2011 - SKRÁNINGU LÝKUR 1. ÁGÚST 2011

filmcontacktnord
Opnað hefur verið á skráningu á samframleiðslufundinn Nordisk Forum. Skráningarfrestur rennur út 1. ágúst 2011. Lesa meira
 

28.6.2011 FRÉTTIR : FJÁRMÖGNUNARMESSA Á KVIKMYNDAHÁTÍÐINNI Í TORONTO - OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR

Alþjóðleg fjármögnunarmessa fer fram dagana 10. - 12. september 2011 í tengslum við kvikmyndahátíðina í Toronto. Umsóknarfrestur rennur út 27. júlí.

Lesa meira

 

28.6.2011 FRÉTTIR : SKRÁNING HAFIN Á NORDISK PANORAMA 2011

Nordisk_Panorama_2011

Opið er fyrir skráningu á Nordisk Panorama 2011. Hátíðin fer fram í 22. sinn í Árhúsum í Danmörku dagana 23. – 28. september 2011. Skráningin fer fram á heimasíðu Nordisk Panorama og geta áhugasamir nýtt sér sérstakt „early bird“ tilboð séu þeir fljótir til.

 

22.6.2011 FRÉTTIR : FJÓRAR ÍSLENSKAR KVIKMYNDIR Á KARLOVY VARY

plakat2011

Fjórar íslenskar kvikmyndir voru valdar inn á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Karlovy Vary. Um er að ræða kvikmyndirnar Kóngaveg eftir Valdísi Óskarsdóttur í flokknum: Variety´s Ten Euro Directors to Watch, Brim eftir Árna Óla Ásgeirsson í flokknum: Horizons, Eldfjall eftir Rúnar Rúnarsson í flokknum: Another View og heimildamyndina Backyard eftir Árna Sveinsson í flokknum: A Musical Oddyssey.

Lesa meira

 

22.6.2011 FRÉTTIR : CINETRAIN: RUSSIAN WINTER, OPIÐ FYRIR UMSÓKNIR

train_winter

Cinetrain: Russian Winter er Vinnustofa sem snýst um einstaka upplifun við framleiðslu á heimildamynd sem mun eiga sér stað í febrúar 2012 í lestarferð frá Murmansk til Irkutsk.
Nánari upplýsingar eru á www.cinetrain.net

 

22.6.2011 FRÉTTIR : UMSÓKNARFRESTUR Á TALENTCAMPODENSE RENNUR ÚT 28 JÚNÍ

_MG_3447gradedcropped

TalentCampOdense eru alþjóðlegar kvikmyndabúðir fyrir unga og efnilega kvikmyndagerðarmenn. Þetta er í fjórða sinn sem þær eru haldnar á sama tíma og Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Odense.

Nánari upplýsingar eru á http://www.talentcampodense.dk

 

15.6.2011 FRÉTTIR : MAMMA GÓGÓ VINNUR ÁHORFENDAVERÐLAUN Í FESTROIA

Gogo_sturtar

Kvikmyndin Mamma Gógó í leikstjórn Friðriks Þórs Friðrikssonar vann áhorfendaverðlaunin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Festroia í Portúgal á sunnudag.

Lesa meira

 

15.6.2011 FRÉTTIR : VINNUSTOFA FYRIR SAMFRAMLEIÐSLU HEIMILDAMYNDA Á SAN SEBASTIAN

Vinnustofa tileinkuð samframleiðslu heimildamynda fer fram í sjöunda sinn á San Sebastian kvikmyndahátíðinni. Vinnustofan stendur yfir í einn dag, þann 23. september 2011. Umsóknarfrestur rennur út 8. júlí 2011. Lesa meira
 

14.6.2011 FRÉTTIR : ELDFJALL HLÝTUR VERÐLAUN Í TRANSILVANÍU

Volcano_Still_klippt
Rúnar Rúnarsson hlaut verðlaun fyrir bestu leikstjórn á kvikmyndahátíðinni í Transilvaníu fyrir kvikmyndina Eldfjall. Rúnar deildi verðlaununum með Constantin Popesc, sem leikstýrði kvikmyndinni Principles of Life. Lesa meira
 

10.6.2011 FRÉTTIR : HEIMILDAMYNDAHÁTÍÐIN SKJALDBORG HEFST Í DAG

Skjaldborg_2011

Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildamynda, verður haldin í fimmta sinn á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina, 10. – 12. júní. Yfir 20 nýjar íslenskar heimildamyndir verða frumsýndar á hátíðinni og spennandi verkefni í vinnslu verða kynnt.

Lesa meira

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar