Um KMÍ
Á döfinni

14.12.2017

Yfirlýsing frá stjórn ÍKSA: Það munar um að vera með!

Stjórn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar (ÍKSA) hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir fjölmörgu sem starfa við kvikmyndagerð á Íslandi og eru ekki þegar félagar eru hvattir til að sækja um aðild.

Yfirlýsingin er svohljóðandi:

"Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían (ÍKSA) lýsir yfir: Það munar um að vera með!

Þið fjölmörgu sem starfið við kvikmyndagerð á Íslandi og eruð enn ekki meðlimir í ÍKSA – endilega bætið úr því og stimplið ykkur inn sem virka þátttakendur í starfi akademíunnar.

Ykkar atkvæði skiptir máli!

Akademían sér um val á þeirri íslensku kvikmynd sem send er til keppni um erlendu Óskarsverðlaunin, oft er mjótt á munum og hvert atkvæði telur.

Fyrir kosningar gefst akademíumeðlimum tækifæri á að sjá myndirnar sem kosið er um án endurgjalds.

Edduverðlaunahátíðin er á vegum ÍKSA og hverjum þeim sem starfar í greininni ætti að renna blóðið til skyldunnar að taka þátt í að kjósa þá sem þeim finnst eiga verðlaun skilið.

Þegar upp er staðið er mikilvægt fyrir kvikmyndageirann að halda lífi í greininni og sýna samstöðu. Þátttaka í starfi ÍKSA er mikilvægur hluti þess.

Allar nánari upplýsingar og umsóknarform má finna hér.

Verið velkomin!!

Stjórn ÍKSA"