KVIKMYNDASAFN ÍSLANDS
ÍSLENSKA KVIKMYNDA - OG SJÓNVARPSAKADEMÍAN (ÍKSA)
FÉLAG KVIKMYNDAGERÐARMANNA
Vefur Félags kvikmyndagerðarmanna: filmmakers.is
SAMBAND ÍSLENSKRA KVIKMYNDAFRAMLEIÐENDA - SÍK
SAMTÖK KVIKMYNDALEIKSTJÓRA
Vefur samtakanna er: http://skl-filmdirectors.net/
FÉLAG LEIKSKÁLDA OG HANDRITSHÖFUNDA
Félag leikskálda og handritshöfunda var stofnað 1974 upp úr eldra félagi leikskálda og hét upphaflega Félag íslenskra leikritahöfunda. Formaður félagsins er Hávar Sigurjónsson.
Vefur félagsins er: www.leikskald.is
MEDIA UPPLÝSINGAÞJÓNUSTAN Á ÍSLANDI
Upplýsingaþjónusta MEDIA á Íslandi er sjálfseignarstofnun og er rekin sameiginlega af MEDIA Plús áætluninni, Kvikmyndamiðstöð Íslands og Menntamálaráðuneytinu.
Framkvæmdastjóri MEDIA upplýsingaþjónustunnar á Íslandi er Margrét Sigríður Vigfúsdóttir
Vefur Media upplýsingaþjónustunnar á Íslandi: www.mediadesk.is
SAMTÖK MYNDRÉTTHAFA Á ÍSLANDI (SMÁÍS)
Samtök myndrétthafa á Íslandi voru stofnuð árið 1992 til að vera hagsmunagæsluaðili rétthafa myndefnis á Íslandi og hafa ýmis hagsmunamál á sínum snærum. Félagsmenn samtakanna hafa rétt til dreifingar á yfirgnæfandi hluta þess kvikmynda- og sjónvarpsefnis og tölvuleikja sem finna má á íslenskum markaði.
Félagsmenn eru kvikmyndahús, helstu útgefendur kvikmynda og sjónvarpsefnis, sjónvarpsstöðvar og helstu dreifingaraðilar tölvuleikja. Jafnframt er SMÁÍS samstarfsaðili MPA (Motion Picture Association). Nánari upplýsingar er að finna á vef smáís: www.smais.is
KIKS (KONUR Í KVIKMYNDUM OG SJÓNVARPI)
KIKS (Konur í kvikmyndum og sjónvarpi) er Íslandsdeild alþjóðlegu WIFT-samtakanna (Women in Film and Television), en þau voru stofnuð í Los Angeles á sjöunda áratugnum með það aðalmarkmið að stuðla að fjölbreytni í myndrænum miðlum með því að virkja konur, gera þær sýnilegri og styðja þátttöku þeirra í framleiðslu kvimynda og sjónvarpsefnis.
Samtökin starfa nú í rúmlega fjörtíu löndum og eru með yfir 10.000 skráða meðlimi. Íslandsdeildin var stofnuð í september 2006.
Vefur KIKS: www.wift.is
KVIKMYNDASKÓLI ÍSLANDS
Kvikmyndaskóli Íslands er alþjóðlegur listaskóli sem býður upp á markvissar námsleiðir fyrir þá sem vilja starfa í kvikmynda- og sjónvarpsiðnaðinum.
Vefur Kvikmyndaskóla Íslands: http://www.kvikmyndaskoli.is/

