Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Children

Um Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíuna

Um Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíuna

Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían er sameiginlegur vettvangur hagsmunafélaga kvikmyndagerðarmanna í landinu til að stuðla að eflingu íslenska kvikmynda- og sjónvarpsgeirans. Í þessu skyni stendur akademían m.a. fyrir veitingu Eddunnar, íslensku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunanna, ár hvert. Edduverðlaunin eru uppskeruhátíð íslenska kvikmynda- og sjónvarpsgeirans, haldin með það að markmiði að efla hann og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða.

ÍKSA er jafnframt útgefandi Lands & sona, málgagns kvikmyndagerðarmanna, á vef og pappír. ÍKSA heldur einnig úti heimasíðuna eddan.is og þar má finna margvíslegar upplýsingar um Eddu-verðlaunin.

Akademían var stofnuð 1999 og voru fyrstu Edduverðlaunin veitt sama ár.

Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían er skráð einkahlutafélag í eigu eftirtalinna aðila:

  • Félags kvikmyndagerðarmanna (FK)
  • Framleiðendafélagsins SÍK (SÍK)
  • Samtaka kvikmyndaleikstjóra (SKL)

Stjórn ÍKSA er skipuð af stjórnum þessara félaga og eiga tveir frá hverju félagi sæti í stjórn. Auk þess á fulltrúi Kvikmyndamiðstöðvar Íslands (KMÍ) sæti í stjórn.

Núverandi stjórn skipa:

  • Hilmar Sigurðsson, formaður
  • Hrafnhildur Gunnarsdóttir, ritari
  • Snorri Þórisson, gjaldkeri
  • Anton Máni Svavarsson, meðstjórnandi
  • Árni Ólafur Ásgeirsson, meðstjórnandi
  • Ragnar Bragason, meðstjórnandi
  • Laufey Guðjónsdóttir meðstjórnandi

Aðsetur akademíunnar er að Hverfisgötu 54, 101 Reykjavík.



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar