Umsókn um aðild að ÍKSA
UMSÓKN UM AÐILD AÐ ÍSLENSKU KVIKMYNDA- OG SJÓNVARPSAKADEMÍUNNI
Teljir þú þig eiga rétt á aðild að Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni þá er hægt að nálgast umóknareyðublað hér. Umsóknin verður afgreidd af stjórn ÍKSA og verður umsækjandi að uppfylla eftirfarandi skilyrði til að hljóta aðild:
Í 2. grein laga ÍKSA segir:
"Á kjörskrá eru meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar. Rétt að aðild að Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni hafa þeir er sannanlega hafa unnið að tveimur kvikmynda- og/eða sjónvarpsverkefnum* í einum eftirfarandi flokka:
- Aðstoðarleikstjóri
- Brellumeistari
- Framkvæmdastjóri
- Framleiðandi
- Gripill
- Handritshöfundur
- Hljóðhönnuður
- Klippari
- Kvikmyndatökumaður
- Leikari í aðal- og/eða aukahlutverki
- Leikmyndahönnuður
- Leikstjóri
- Ljósahönnuður
- Tónlistarhöfundur
- Hljóðmaður
- Leikmunavörður
- Aðstoðartökumaður
- Sviðsmaður
- Búningahönnuður
- Förðunarmeistari
- Tæknistjóri
- Myndblandari
- Skrifta
- Grafískur hönnuður
*Með kvikmynda- eða sjónvarpsverkefnum er átt við kvikmyndir sem hafa verið sýndar opinberlega í kvikmyndahúsi í a.m.k. sjö daga samfleytt og sjónvarpsefni sem birst hefur á viðurkenndri sjónvarpsstöð og fellur undir þá flokka sem tilnefnt er í. "
Umsóknina má senda á info@kvikmyndamidstod.is eða á neðangreint heimilisfang:
Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían ehf., Hverfisgata 54, 101 Reykjavík
Umsækjendur geta einnig mætt á kjörfund, sem vanalega fer fram vikuna fyrir Edduhátíð hvers árs, og skilað umsókninni inn. Verður þá farið með atkvæði umsækjenda sem utankjörstaðaatkvæði. Stjórn ÍKSA tekur ákvörðun um aðild að lokinni kosningu.

