Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Kvikmyndamiðstöð íslands

2009

allarmaettar

ALLAR MÆTTAR - MARÍA GUÐMUNDSDÓTTIR

Allar mættar er ný íslensk heimildarmynd sem byggir á íslenskum raunveruleika. Hún segir frá Ástbjörgu Gunnarsdóttur sem hefur rekið sama fimleikahópinn í 50 ár. Lesa meira
 
Happyhour

ÁRÁSIN Á GOÐAFOSS - BJÖRN BRYNJÓLFUR BJÖRNSSON

Í nóvember 1944 var Goðafoss að koma til Íslands þegar þýskur kafbátur sökkti skipinu skammt frá Reykjavík. Með Goðafossi fórust 42 menn, konur og börn og var þetta mesta manntjón sem Íslendingar urðu fyrir í seinni heimsstyrjöldinni. Lesa meira
 
Chukotka_torp300dpi-ProfilePic

CHUKOTKA: Á HJARA VERALDAR - VALDIMAR LEIFSSON

Heimildamynd um líf og náttúru í Chukotka í Síberíu og þær breytingar sem þar hafa átt sér stað í kjölfar kjörs Roman Abramovich sem landstjóra árið 2000.

Lesa meira
 
rafmagn

DRAUMALANDIÐ - ÞORFINNUR GUÐNASON / ANDRI SNÆR MAGNASON

Draumalandið fjallar um þjóð sem er búin að koma upp öllum sínum innviðum og hefur öll tækifæri í hendi sér en ákveður að gera landið að einni stærstu málmbræðslu í heiminum. Til þess þarf að fórna einstæðri náttúru og þenja efnahagskerfið til hins ítrasta. Lesa meira
 
The_Mysteries_of_the_Snaefellsjokull_3rgb

DULARÖFL SNÆFELLSJÖKULS - dir. JEAN MICHEL ROUX

Fyrir sumum er Snæfelljökull aðeins tilkomumikið fjall. Fyrir öðrum er hann annað og meira; miðstöð dularkrafta, orkustöð eða jafnvel áningarstaður geimvera.

Lesa meira

 
gott_silfur_gulli_betra

GOTT SILFUR GULLI BETRA - ÞÓR ELÍS PÁLSSON

Myndin fjallar um udirbúning handboltalandsliðsins fyrir Ólympíuleikana í Peking 2008 og sigurgögnu þeirra á þeim leikjum.
Lesa meira
 
god_bless_iceland_klippt

GUÐ BLESSI ÍSLAND - HELGI FELIXSON

Heimildamynd um afleiðingar hruns íslenska fjármálakerfisins á þrjá mismunandi og ólíka þjóðfélagsþegna sem kvikmyndagerðamaðurinn Helgi Felixson fylgir eftir. Lesa meira
 
krafturoic3

KRAFTUR - SÍÐASTI SPRETTURINN - ÁRNI GUNNARSSON, STEINGRÍMUR KARLSSON, ÞORVARÐUR BJÖRGÚLFSSON

Kraftur fjallar um hinn ósýnlilega þráð er liggur milli manns og hests. Varpað er ljósi á einstakt samband Tóta og Krafts, sigurgöngu þeirra og söknuð þegar Tóti þarf að skilja við hestinn að lokinni keppnni á Heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Hollandi 2007. Lesa meira
 
jorunn_klippt

ORÐIÐ TÓNLIST: JÓRUNN VIÐAR - ARI ALEXANDER ERGIS

Heimildarmynd um Jórunni Viðar tónskáld (f. 1918) sem hefur öðrum fremur brúað bilið milli íslenskrar hefðar og alþjóðlegrar nútímatónlistar.

Lesa meira
 
sigur_i_tapleik_poster

SIGUR Í TAPLEIK - EINAR MÁR GUÐMUNDSSON

Fyrir suma er fótbolti skemmtun, fyrir aðra er fótbolti vegurinn til frægðar og frama. Fyrir meðlimi knattspyrnuliðs SÁÁ er fótbolti leið til að þrauka og ná tökum á lífi sínu. Lesa meira
 
solskinsdrengurinn_2

SÓLSKINSDRENGURINN - FRIÐRIK ÞÓR FRIÐRIKSSON

Sólskinsdrengurinn segir sögu Margrétar, sem hefur reynt allt til að koma syni sínum til hjálpar. Keli er ellefu ára og með hæsta stig einhverfu. Þó Margrét eygi ekki mikla von fyrir hönd Kela brenna á henni margar spurningar um það dularfulla og flókna ástand sem einhverfa er. Lesa meira
 
stelpurnar_okkar

STELPURNAR OKKAR - ÞÓRA TÓMASDÓTTIR

Stelpurnar okkar fjallar um baráttu íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu um að komast á Evrópumeistarmótið í Finnlandi 2009. Lesa meira
 
Wonders_of_Water-3

UNDUR VATNSINS - PÁLL STEINGRÍMSSON

Hvergi í heiminum er auðveldara að fylgjst með margvíslegri hegðun vatns og á Íslandi. Hið mikilfenglega Norður-Atlantshaf, fjöldi stöðuvatna, dynjandi fossar, tærir lækir og gruggugar jökulár.

Lesa meira
 

 

 

efnisyfirlit síðunnar